Vikan - 09.02.1993, Side 35
I
en það er líka faglegt mat sem þessu ræður.
Við megum ekki gleyma því að bankaráðs-
menn eru ábyrgir fyrir rekstri bankanna."
- En mætti ekki líka spara meira í rekstri
bankanna en gert er?
„Jú, en það verður þó að segja Landsbank-
anum til hróss að vaxtamunur þar er minni en
í öðrum bönkum og bankinn hefur lengi verið
með lægri vexti en til dæmis íslandsbanki sem
hefur reyndar haft forystu í háum vöxturn."
- Víkjum aðeins að Kvennalistanum.
Hvenær verður hann úreltur?
„Ég mundi ekki nota hugtakið „úreltur“'en
einhvern tíma ákveðum við kannski að hætta
að fara þessa framboðsleið og gerum eitthvað
annað í staðinn. Þetta finnst mér vera kjarni
málsins, að framboð er eitthvað sem við velj-
um að gera vegna þess að við teljum að það
skili konum einhverjum árangri. En ef við
kæmumst að þeirri niðurstöðu að eitthvað
annað skilaði meiri árangri eða væri orðið
tímabært að gera í kvennabaráttunni þá finnst
mér að við ættum ekki að hika við það. Ef við
lítum á okkur sem kvennahreyfingu - við höf-
um alltaf ítrekað að við erum ekki pólitískur
flokkur í hefðbundinni merkingu þess orðs -
þá undirstrikum við það með því að við getum
breyst, tekið á okkur önnur form en við höfum
nú. Og við eigum ekkert að hika við það ef
svo ber undir.“
GRÍMAN FELLUR Í KREPPUNNI
„Það er svolítið merkilegt að þegar vel gengur
í samfélaginu, þegar uppsveifla er í gangi, þá
er meira umburðarlyndi gagnvart Kvennalist-
anum og slíkum hreyfingum. Þegar fer siðan
að bera á kreppueinkennum er eins og um-
burðarlyndi minnki gagnvart öllu sem ekki er
hefðbundið. Mér finnst ég verða vör við það
núna og líka minnkar umburðarlyndi gagnvart
réttindabaráttu af ýmsu tagi. Mér finnst ég
verða vör við þetta í fjölmiðlum og hvers kyns
umfjöllun í samfélaginu. Nú er þetta „kvenna-
kjaftæði“ bara lúxus sem við höfum ekki efni á
og við ættum að snúa okkur að einhverju öðru
- þetta er tónninn í umræðunni.
Mér finnst ég líka verða vör við þetta hjá
stjórnmálamönnunum. Þeir eru búnir að
gleyma þessari „mildi“ gagnvart konum sem
einkenndi þá alla á tímabili. Þeir nota hugtök
sem mér finnst mjög „sexísk". Sem dæmi má
nefna þegar Garri Tímans skrifar um okkur
vegna vaxtaákvarðana í Landsbankanum og
talar um okkur sem „the fallen Madonna with
the big boobies" - að við liggjum flatar fyrir
fótum einhverra karla. Svona finnst mér líka
margt í umræðunni á þinginu. Það er ekki
vegna þess að menn geri þetta meðvitað
heldur fellur gríman bara. En ég tel að einmitt
á krepputímum sé mikilvægt að finna mann-
eskjur sem vilja gæta hagsmuna kvenna og
það er mjög vegið að þeim einmitt núna af
þessari ríkisstjórn.“
KRÖKKUNUM FINNST
KVENNALISTINN GAMALL
- Er ekki samt sem áður viss hætta á því að
Kvennalistinn sverji sig sífellt meira í ætt við
stjórnmálaflokka, verði eins og hver annar
flokkur og glati sérstöðu sinni og ferskleika?
„Jú, það er auðvitað alltaf ákveðin hætta á
því. Við erum búnar að vera tíu ár í pólitfk og
Kvennalistinn er búinn að slíta barnsskónum.
Það er ekki sama einlægnin eða eindrægnin
og áður og kannski er þessi ágreiningur, sem