Vikan - 09.02.1993, Side 39
dóttir (Addý) og Guðmundur
Sveinbjörnsson. Við gerðum
stóra plötu sem gekk alveg
þokkalega og eitt lag, Waiting
for an Answer, náði töluverð-
um vinsældum á Rás tvö sem
var eina létta stöðin í þá
daga. Nafnið á hljómsveitinni
fékk ég úr Mac Bolan bók
löngu eftir tilurð sveitarinnar
en það þýðir okkar meining
eða eitthvað slíkt og er notað
um fjölskyldubönd í ítölsku
mafíunni.
Að endingu fór svo að við
Addý vorum ein eftir en vorum
alltaf á leiðinni í hljóðver. Svo
uppgötvaði ég að áhuginn var
ekki fyrir hendi lengur, hafði
reyndar verið að spila aðeins
með Stjórninni (undanfara nú-
verandi Stjórnar) og Kikk. Ég
vildi bara klára Verzló og
hætta öllu, seldi því öll hljóm-
borðin og allt draslið eins og
það lagði sig - ætlaði aldrei
að gera neitt meir.“
Máni losnaði samt ekkert
við bakterfuna og svindlaði
reyndar svolítið því hann seldi
öll hljómborðin nema eitt,
hugsaði sem svo að gott væri
að eiga eitt svona lítið heima.
Og ísinn brotnaði þegar hann
hitti Júlíus Kemp skólafélaga
sinn í partíi.
„Júlli, hann fær yfirleitt mjög
villtar hugmyndir og fram-
kvæmir þær. Hann vildi gera
gott danslag og gefa það út.
Ekkert mál. Hann hringdi,
kom og hlustaði og þekkti líka
stelpu sem gat sungið, Ingi-
björgu Stefánsdóttur. Og við
gerðum lagið Lag eftir lag á
tveimur tímum í hljóðverinu
hjá Jakobi Magnússyni. Allt
mjög hraðsoðið og upptöku-
stjórinn, Þorvaldur B. Þor-
valdsson (úr Todmobile) hélt
líka að við værum að grfnast
þegar við sögðum við hann
að við þyrftum að fá lagið á
DAT-spólu (stafrænt segul-
band) því þetta ætti að fara á
plötu hjá Skífunni. Þorvaldur
trúði ekki sínum eigin eyrum!
Hann hélt að við værum að
gera prufuupptöku og sagðist
mundu hengja mig ef ég
segði einhverjum frá því að
hann hefði unnið þetta með
okkur! En bæði lagið og
myndbandið vakti mikla at-
hygli."
ÁVÍSUNUM RIGNDI
Þetta var árið 1990 en árið
eftir kom lagið Moldrokk út á
plötu. Það fjallar um að landið
sé að fjúka burt og segir Máni
alveg ótrúlegt hvernig „kerfið“,
eins og hann orðar það, virk-
ar. „Við sendum bréf til um-
hverfisráðuneytisins, Land-
græðslunnar og þess háttar
stofnana og báðum um styrki.
Og það var eins og við mann-
inn mælt, ávísunum rigndi inn
um bréfalúguna, alveg ótrú-
legt! Enginn spurði að því
hvað ætti að gera við pening-
ana en við notuðum þá meðal
annars til að gera myndband
við lagið. Þess vegna hefðum
við getað verið einhverjir
skúrkar."
Pís of keik var orðin til, Júlli
fékk hugmyndina að Vegg-
fóðri, gerði myndina, að vísu
með hjálþ lottóvinnings bróður
síns - ......ótrúlegt hvernig
hann rúllaði í gegnum þetta
dæmi,“ segir Máni - og platan
með lögunum úr myndinni
seldist í yfir fjögur þúsund ein-
tökum enda hangir gullplata
(gamla viðmiðunin var þrjú
þúsund eintök) á veggnum
hjá Mána. Reyndar kemur
maður að nafni Birgir Fannar
Birgisson nokkuð við sögu Pís
of keik en hann samdi textana
á Lag eftir lag og Moldrokki.
„Ótrúlega orðheppinn maður
en Ingibjörg og Júlli geta líka
soðið saman frábæra vit-
leysu,“ segir Máni.
3. TBL. 1993 VIKAN 39