Vikan - 09.02.1993, Side 60
TEXTIOG UÓSM.: JÓHANN GUÐNIREYNISSON
Stórgeiflarinn og söngvarinn Bergsveinn
Arilíusson og fleiri í upphafi sýningarinnar.
Tónlistarflutningur er undir stjórn Eyjólfs
Kristjánssonar.
The Commitments í FB:
• •
FJOLBRAUTARHYLTINGAR
myndinm um það lægsta af
öllu lágu og allt um það, að
minnsta kosti í augum sumra.
Ferlið á sér stað í Breiðholti
og gera Hyltingarnir þar með
dálítið grín að sjálfum sér sem
fjölskrúðugu, þéttskipuðu
Innan • veggja framhalds-
skólanna leynast ekki bara
námshestar, bókaormar og
fórnarlömb miskunnarleysis
heimaverkefnanna, nema allar
þessar dýrategundir komi
saman í einu og sama fólkinu
ásamt hinni alræmdu félags-
fíkn. Margt af þessu fólki reyn-
ir að komast yfir að gera allt,
líka ná prófum, og það merki-
lega er; flestir ná þessum tak-
mörkum sínum. Nóg um það.
Áttatíu svona manns taka nú
þátt í stórri uppfærslu í félags-
lífi Fjölbrautaskólans í Breið-
holti þar sem flutt verður
þeirra túlkun á myndinni The
Commitments, söngtextum á
ensku og íslenskum leiktext-
um. Og þetta er svo vel gert
að þegar búið var að renna
fyrsta atriðinu að hluta fyrir
sjónum erindreka (ekki ömmu
dreka) Vikunnar hélt sá að nú
væri allt búið. Það var nefni-
lega þannig að einhver virtist
svangur, hann spurði hvort
einhver væri ekki til í að fara
og kaupa hamborgara fyrir
einhverja. Einhverjir virtust til í
það og í einhverjar sekúndur
spurði einhver frá Vikunni
næstum því einhvern í FB
hvort einhver myndi halda á-
fram að leika en þá rak ein-
hver leikarinn upp heljarmikið
bofs. Þetta var atriði. Berg-
sveinn Arilíusson, í aðalhlut-
verki, hóf upp á andlit sér ein-
hverjar þær allra mestu geiflur
sem honum var unnt, einhver
sagði að svona væri þetta f
myndinni nema hvað Berg-
sveinn gerði þetta jafnvel bet-
ur. Fjölmargir dansarar koma
við sögu undir stjórn Helenu
Jónsdóttur dansfrömuðar en
hún sér ennfremur um leik-
stjórn. Þá hefur stórmúsíkant-
inn Eyjólfur Kristjánsson verið
Breiðhyltingum innan handar
og hefur verið haft á orði að
honum hafi nánast verið
brugðið þegar hann varð vitni
að hæfileikum tónflytjenda
innan skólans. Þess má geta
að hljómsveitina skipa nem-
endur við FB einnig. Hið ís-
lenska handrit skrifuðu þeir
Bjöm Ófeigsson, Ragnar Þór
Ingólfsson og Ólafur Guð-
mundsson. Það fjallar á svip-
aðan hátt og gert var í kvik-
samfélagi og öllu sem því fylg-
ir. Aukasýning verður haldin
fyrir almenning en frumsýning
verður á Hótel íslandi þann
23. febrúar um miðjan dag í
tilefni árshátíðar nemendafé-
lagsins en dansleikur verður
haldinn þegar húma tekur að
kveldi, kertaljós að kvikna,
syngja í glasbörmum fullum,
hnarreist raddbönd þenjast,
teygja skemmtitungur sig um
hljómríka sali og svo framveg-
is og svo framvegis. Góða
skemmtun! □
Fjölmargir taka þátt í
sýningunni og má sjá
hluta þeirra hér aö
ofan og á myndinni aö
neöan eru
dansararnir. Helena
Jónsdóttir sér um
dansatrióin og leik-
stjórn.
60 VIKAN 3. TBL. 1993