Vikan - 26.08.1993, Side 18
TEXTI: LOFTUR ATLIEIRÍKSSON
VIÐTAL VIÐ HERSTEIN PÁLSSON, ÞÝÐANDA OG FYRRUM
FRÉTTIN VAR TILBÚIN
- AÐEINS BEÐIÐ EFTIR
ATBURDINUM SJÁLFUM
Hersteinn Pálsson er
löngu þjóðkunnur maður
á sviði fjölmiðlunar og
þýðinga. Undirritaður man
eftir honum fyrst sem
þýðanda og þul í þáttun-
um um fyrri heimsstyrj-
öldina sem sýndir voru í
árdaga Ríkissjónvarpsins
en hann hafði löngu áður
skapað sér nafn í íslensk-
um fjölmiðlaheimi sem
blaðamaður og ritstjóri
Vísis.
Þótt Hersteinn sé nú kominn
á áttræðisaldur er hann
enn að, þýðir og vinnur
annað tilfallandi og um árabil hef-
ur hann séð um þýðingar fyrir
kvikmyndahús og enn koma út
bækur í þýðingu hans. Það er því
vart til það mannsbarn á landinu
sem hefur ekki lesið bækur eða
texta eftir Herstein, þótt hann hafi
ekki veriö eins áberandi í þjóðlíf-
inu síðustu árin og í ritstjórnartíð
sinni hjá Vísi.
Á undanförnum áratugum hef-
ur orðið bylting á sviði fjölmiðlun-
ar og upplýsingaflæðið slíkt að
gildi dagblaða fer þverrandi.
Tæknilega séð virðist allt sem
hugsast getur orðið framkvæm-
anlegt og sem dæmi má nefna að
nú er hægt að breyta Ijósmyndum
fram og til baka með einföldum
tölvuskipunum þannig að sann-
leiksgildi þeirra hefur takmarkast
til muna. Fjarlægðir eru mældar í
sekúndum og daglegt brauð að
við fylgjumst með atburðum hin-
um megin á jarðarkringlunni í
beinni útsendingu um gervihnetti.
Þessi þróun er talsmönnum
frjálsrar hugsunar og aukins
skilnings þjóða á milli að sjálf-
sögðu fagnaðarefni en á sama
tíma líta blaðamenn rómantískum
saknaðaraugum til þess tíma er
orðið hafði sterkari merkingu og
það var undir árvekni þeirra kom-
ið að fréttir af heimsviðburðum
kæmust til skila.
Ég hringdi til Hersteins á dög-
unum og spurði hvort hann hygð-
ist rita endurminningar sínar.
Hann sagðist hafa hugleitt það þar
eð ýmsir hefðu hreyft því við sig
en komist að þeirri niðurstöðu að
hann hefði ekkert merkilegt að
segja. Ég vissi að það var fjar-
stæða því að Hersteinn er frábær
H Þab var margt sem maöur geröi sér til gamans ó þessum ór-
um og vorum viö stundum aö glettast viö kollegana ó hinum
blööunum, ekki síst Mogganum.
■ Leiöaraskrif mín voru ekki alltaf í takt viö pólitiskar óherslur
Gunnars Thoroddsens og þvi var fljótlega settur aðstoðarrit-
stjóri mér við hlið til þess áb túlka kenninguna rétt...
sögumaður og húmoristi. Ég fal-
aðist eftir viðtali og eftir að hann
hafði reynt að draga úr mér
kjarkinn ákvað ég að fá Margréti
Ásgeirsdóttur, eiginkonu hans, til
liðs við mig. Sem betur fer brást
Margrét á jákvæðan hátt við ósk
minni og lét Hersteinn þá tilleiðast.
Þau hjónin hafa búið á Seltjarn-
arnesi frá því það var lítið og lágt
en botninn er löngu dottinn úr
þessari vísu Þórbergs. Nokkrum
dögum síðar buðu þau mér í
morgunkaffi og við tylltum okkur í
fallegri stofunni sem er skreytt mál-
verkum þjóðkunnra listamanna.
Það er með misjöfnu hugarfari
sem ég tek viðtöl og í þessu tilfelli
ákveð ég að gefa viðmælanda
mínum lausan tauminn því að ég
sé það á svip hans að ég er enn
þá blautur á bak við eyrun í sam-
anburði við alla þá reynslu sem
hann hefur að baki. Ég spyr fyrst
hvort það sé eitthvert sérstakt
tímabil á ævinni sem hann hafi
hug á að tala um.
INNRÁSIN HAFIN
„Það var náttúrlega oft ákaflega
gaman meðan maður var í blaða-
mennskunni. Ég stundaði hana frá
1936 til 1963 og það var mjög
margt áhugavert og einnig spaugi-
legt sem gerðist. Þrem mánuðum
áður en innrás bandamanna á
meginlandið hófst undirbjuggum
við Vísismenn til dæmis sérstakt
tveggja síðna aukablað um hana
enda var hún fyrirsjáanleg. Á for-
síðunni var kort af Ermarsundi og
Norður-Frakklandi, svo og greinar
um Dwight D. Eisenhower, sem
var yfirhershöfðingi bandamanna,
og Gerd von Rundstedt, æðsta
mann Þjóðverja í Frakklandi, á-
samt myndum af þeim. Yfir var fyr-
irsögn með risaletri - INNRÁSIN
HAFIN. Og þegar þetta var komið í
form vantaði aðeins inngang frétt-
arinnar, nánari upplýsingar um stað
og stund þegar innrásin hæfist.
Eins og ég sagði var þetta und-
irbúið með margra vikna fyrirvara
og þegar allt var klappað og klárt
var ekkert eftir annað en að bíða -
eins og herirnir við Ermarsund. All-
an þennan tíma vaknaði ég klukk-
an fimm á morgnana og hlustaði á
nýjustu fréttir í BBC, breska út-
varpinu, og aftur klukkan sex.
Það var ekki fyrr en 6. júní
sem BBC greindi frá því klukkan
sex að Þjóðverjar hefðu tilkynnt
18VIKAN 17.TBL.1993