Vikan - 26.08.1993, Page 23
leikið eftir Eufemíu Waage móð-
ursystur minni en hin var Siggi
flug þar sem Sigurður Jónsson,
fyrsti íslenski atvinnuflugmaöur-
inn, skýrði frá ævi sinni. Ég las
einnig oft upp f útvarp og af
þessu sést að ég hafði mörg járn
f eldinum og skorti mig aldrei
verkefni."
Margrét hefur ekki setið að-
gerðalaus á meöan við höfum
verið að spjalla og er búin að
þekja borðstofuborðið með tert-
um og smurðu brauði eins og um
stórveislu sé að ræða. Hún býður
mér glæsilega tertu en ég segist
ekki kunna við að skera í ósnerta
tertuna. Hún segir mér að vera
ekki feiminn við það og Hersteinn
bætir við að hún geti bara bakaö
upp í skarðið á eftir.
Talið berst aftur að tímanum á
Vísi.
„Já, það komu margir góöir
menn á Vísi í gamla daga, meðal
annars Kjarval, en í eitt skiptið fór
ég til hans til að taka viðtal í tilefni
af sextíu og fimm ára afmæli
hans. Ég sat og punktaði niður því
að maður hafði ekki segulbands-
tæki í þá daga og ég sá að hann
var eitthvað að rissa á meðan ég
var að tala við hann. Svo gerist
það nokkrum dögum sfðar að
hann kemur og færir mér málverk.
Þá hafði hann verið að teikna and-
litsmynd af mér á meðan við töluð-
um saman og var nú búinn að
gera málverk eftir teikningunni."
LEIKID Á SVIÐI OG
JAFNVEL í KVIKMYND
Ég spyr hvort Hersteinn hafi ekki
fengist eitthvað viö leiklist endur
fyrir löngu. „Jú,“ svarar hann og
brosir við. „í því efni á ég sjötíu
ára afmæli á næsta ári. Árið 1924
kom nefnilega hingað kvikmynda-
tökuflokkur frá Nordisk Film í
Kaupmannahöfn og var tilgangur-
inn aö taka upp kvikmyndagerð
af skáldsögunni Höddu Pöddu
eftir Guðmund Kamban. Mynda-
takan fór að nokkru leyti fram í
Hafnarfjaröarhrauni og ég var
meðal nokkurra krakka sem voru
hafðir til uppfyllingar. Ég hafði
grobbað af því að ég hefði leikið í
þessari kvikmynd og fjöiskyldan
beið í ofvæni eftir aö sjá „stjörn-
una“. Þegar Sjónvarpið sýndi
hana fyrir nokkrum árum kom á
daginn að ég sást aö vísu en aö-
eins aftan frá en ég þekktist hins
vegar á Ijósum kolli.
Lengri varð minn kvikmynda-
ferill ekki en ég lék hins vegar í
Menntaskólanum og í fáeinum
leikritum hjá Leikfélaginu bæði
áður og eftir að ég var búinn í
Menntaskólanum. Satt að segja
var það mér fjötur um fót að ég
var mjög feiminn og við feimnina
losnaði ég raunar ekki fyrr en árið
1953 þegar ég var tíu vikur einn á
ferð um Bandaríkin. Margrét kona
mín segir að vísu að ég sé leikari
í daglegu lífi en þú skalt taka því
með fyrirvara."
Það er komið vel fram yfir há-
degi og kominn tími til að kveðja
enda bíða verkefnin eftir Her-
steini sem enn skilar fullum
vinnudegi og vel það. □
NYTT TÖLUBLAÐ Á 600 SÖLUSTÖÐUM
LITIR OG rORNt
HJÁ UNGU FÓLKI
L HEIMILI EFTIR 14
^ÁUt ENDURBÁ1
fk- iNNRÉrriNGAR
PÚ GETUR EKKI
VERID ÁN
HUSA & HIBYLA
ÁSKRIFTAR- OG DREIFINGARSÍML 813122
STIGAR
LYFTUR
HURÐIR
GLERLIST
SKÚLPTUR
MYNSTURMALUN
SAMÚTGÁFAN KORPUS HF
17.TBL. 1993 VIKAN 23