Vikan


Vikan - 26.08.1993, Qupperneq 27

Vikan - 26.08.1993, Qupperneq 27
Þetta eru náttúruleg viöbrögö líkamans viö hættu og undir- búningur hans undir aö mæta henni. Þegar viö áttum okkur á því aö hættan er liðin hjá dregur úr adrenalínframleiösl- unni og viö slökum á. Þessi náttúrulegu viöbrögð finnst okkur eölileg en ef viö finnum enga skiljanlega ástæöu fyrir slíkri adrenalínaukningu verö- um viö smeyk um aö eitthvað sé ekki í lagi hjá okkur. Þeir sem líta á kvíöatilfinn- ingar sem eðlileg viðbrögö líkamans og halda ró sinni þróa ekki meö sér óskil- greindar kvíöatilfinningar. Hinir, sem ekki átta sig því að þeir eru orönir of stressaðir, veröa hræddir við viöbrögö líkamans, þróa meö sér áöur- nefnt atferli að forðast og þar meö forsenduna fyrir óskil- greindum kvíöaköstum. AÐ LOKUM Þessi hugmynd um þaö hvernig slík óskilgreind hræðsluköst veröa til og fara aö einkenna líf margra ein- staklinga er ekki mjög gömul en hún felur á vissan hátt í sér bæöi hugmyndir Freud- ista og atferlissinna. Margir hafa unniö út frá henni og fengið fullan bata. Vitanlega væri hægt aö skrifa mikið um svona hræösluköst og margir geta bætt viö endalausum frásögnum en ég læt hér staðar numiö. Ég vona aö þú sjáir aö þaö hefur lengi veriö fengist við þessi köst og stööugt er verið aö þróa nýjar leiðir og aðeins meö þvi aö leita aðstoðar getur þú tekist á viö þetta. Eins og oft áöur vil ég ýta á þig með að leita þér aðstoðar því þú átt þaö skilið eins og allir aörir aö gera allt sem í þínu valdi stendur til aö láta þér líða vel. í næsta blaði mun ég fjalla nánar um hvernig þú getur byrjað á að breyta lífi þínu. Meö kærri kveöju, Sigtryggur LANGAR AÐ LÆRA JAPÖNSKU OG SKART- GRIPAHÖNNUN FORSÍÐUSTÚLKAN FRH. AF BLS. 7 Frakkland i fyrsta sinn nú í sumar. Ég hef líka mikinn á- huga á að læra japönsku. Ég gæti síðan vel hugsaö mér aö vinna eitthvað í feröageiran- um eða við fjölmiðlun. Því er svo viö aö bæta aö ég gæti vel hugsað mér aö læra skart- gripahönnun eöa skartgripa- smíði. Ætli ég fari ekki fyrst til Frakklands, áður en ég held lengra. Tungumál eiga vel viö mig og þegar ræö ég prýöilega viö ensku, þýsku, sænsku og dönsku. Ég bjó í tvö ár i Sví- þjóö þegar ég var lítil. Tvisvar sinnum hef ég dvalið um skeið í Bandaríkjunum þar sem ég gekk í bæöi skiptin í skóla í einn og hálfan mánuð. Ég hef þrisvar sinnum kom- iö til Þýskalands og í fyrra- sumar var ég þar í einn mán- uö. Þá var mér boðið aö taka þátt í EUROKAMP ásamt sextíu unglingum frá ýmsum löndum Evrópu en margir þeirra voru frá fyrrum austan- tjaldslöndum. Þetta var í raun auglýsingaherferö fyrir sam- bandsríkið Sachsen-Anhalt sem áður tilheyrði Austur- Þýskalandi. Við heimsóttum meðal annars kolaverksmiöjur og efnaverksmiðjur, ferðuð- umst svolítiö um borgina Dresden og einn dag dvöldum viö í Berlín. Suma dagana vorum við vakin snemma á morgnana til vinnu og voru verkefnin fólgin í aö planta trjám og fegra umhverfið á ýmsan hátt.“ AUSTURLENSK FRÆÐI, LESTUR OG TÓNLIST - Hvaö með japönskuna? „Japanska freistar mín vegna þess að mér finnst austurlensk menning heillandi. Ef maöur fer út í viðskipti get- ur komið sér vel aö kunna japönsku sem er að veröa æ mikilvægari á þeim vettvangi meö hverju árinu sem líður. Japanskan er örugglega gríö- arlega erfið og ég veit svo sem ekki hvernig ég á aö fara aö þvi aö læra hana - en ég hef hug á aö komast í einka- kennslu til aö byrja með.“ - Helstu áhugamál? „Þau eru svo mörg. Ég ferðast til dæmis mjög gjarn- an - og þá ekki síst innan- lands. íþróttir hafa einnig ver- iö ofarlega á blaði hjá mér og knattspyrnu lék f mörg ár, fyrst meö Víkingi ocj svo Val, en nú er ég hætt. Eg hef líka ákaflega gaman af að fara út á lífið til að skemmta mér og hitta fólk.“ - Lestu mikiö? „Já, þaö hefur veriö aö aukast meö árunum. Ég les fyrst og fremst innlendar skáldsögur og auövitað er móöir mín eftirlætishöfundur- inn minn - ha, ha. Ég hlusta líka mikið á tónlist og er allt aö þvi alæta á hana.“ - Hvaö um fyrirsætustörfin, er nokkurt pláss fyrir þau? „Það verður bara að koma í Ijós. Ég tók þátt í Ford-keppn- inni 1989 og hef starfað svo- litiö viö fyrirsætustörf síðan. Ég gæti hugsað mér aö vinna meira á þessu sviði. í fyrir- sætukeppninni tek ég þátt mér til gamans, hún gefur manni meðal annars færi á að kynnast skemmtilegu fólki.“ Fyrirsæta í París, kannski? „Maður hættir auövitaö ekki fyrr en maður kemst í Vogue. Nei, nei, ég segi bara svona. Ég gæti vel hugsaö mér að starfa viö sýningarstörf í ein- hvern tíma og þaö væri ekki verra aö geta unnið eitthvað meö náminu í París ef af því verður." - Fæstu viö að skrifa? „Ekki get ég sagt það en ég er í ritnefnd Verzlunarskóla- blaðsins. Viö erum byrjuð á fullu aö undirbúa vetrarstarfiö og vorum aö enda viö að gera myndband. Þessu starfi mínu munu fylgja einhverjar skriftir eins og gengur. Ég hef meira gaman af að skrifa greinar heldur en skáldskap - sem ég hef ekki spreytt mig á ennþá." - Áttu þér einhvern draumaprins? „Draumaprins? Þaö er þá bara kærastinn. Hann er í sama bekk og ég og heitir Björgvin Skúli Sigurösson." □ 17. TBL. 1993 VIKAN 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.