Vikan - 26.08.1993, Side 30
LEIÐBEININGAR FYRIR ÞÁ SEM VIUA NOTA ÍSLENSKAR LÆKNINGAJURTIR
Víöa erlendis eru jurtalyf og önnur náttúruleg efni til lækninga seld í sérstökum jurtalyfja-
verslunum. Á undanförnum árum hafa háskólamenntaóir læknar og grasalæknar átt vaxandi
samstarf sín á milli. í Frakklandi standa læknum til dæmis til boóa ókeypis námskeió í
grasalækningum.
Blómameðul Bachs virðast
stuðla aö því að dulin tilfinn-
ingaleg spenna komi upp á yf-
irborðið. Fólki er gert kleift að
upplifa rætur vandans og láta
þannig af sjúkdómseinkenn-
unum.
ÍSLENSK JURTALYF
Þegar jurtalyf eiga í hlut þurfa
íslendingar ekki að leita langt
yfir skammt. Lækningar með
jurtum hafa verið stundaðar
hérlendis frá landnámsöld og
hefur þessi forna lækningalist
líklega hvergi varðveist jafn-
vel. í bókinni íslenskar lækn-
inga- og drykkjarjurtir heldur
Björn L. Jónsson því fram að
gömlu og góðu grasalæknarn-
ir hafi komið ýmsu gagnlegu
til leiðar á umliðnum öldum.
Hann óttaðist hins vegar að
þeir væru horfnir af sjónar-
sviðinu. Svo er nú ekki, sem
betur fer. Lækningamáttur
hinna ýmsu jurta úr gróðurríki
íslands er slíkur að hann
tryggir langlífi þessarar fornu
þekkingar og varðveitir þar
með þá einstak-
linga sem kunna
með hana að
fara. „Vísar kon-
ur”, eins og þær
eru nefndar, hafa
alltaf verið til og
þær hafa varð-
veitt mann fram
af manni þekk-
inguna um lækn-
ingagildi jurt-
anna. Ásta Er-
lingsdóttir er ein
þessara vísu
kvenna.
ÁSTA ERL-
INGSDÓTTIR
GRASAKONA
Ásta Erlingsdóttir
fæddist f Hauka-
landi, vestanvert í
Öskjuhlíðinni, en bær-
inn stóð skammt frá
þeim stað þar sem Hót-
el Loftleiðir eru núna.
Faðir Ástu, Erlingur Filipp-
usson, var vel þekktur grasa-
læknir á sínum tíma. Hann
fékk þessa þekkingu í móður-
arf enda hefur hún varðveist í
Baldursbrá
kvenlegg ættarinnar í rúm tvö
hundruð ár. Ásta fylgdist frá
barnæsku með því þegar faöir
hennar safnaði jurtum, þurrk-
aði þær og sauð úr þeim lyf
við margs konar meinsemd-
um. Margir fóru fyrst til há-
skólamenntaðra lækna og
síðan til hans þegar ráð þeirra
fyrrnefndu brugðust. Sumir
komu þó beint til fööur henn-
ar.
Ásta nam af reynslu föður
síns og las auk þess allt sem
hún komst yfir um grös og
grasalækningar. Hún hefur nú
margra ára reynslu að baki í
jurtalækningum og hefur
hjálpað vel því fólki sem til
hennar hefur leitað. Vitað er
að fólk, sem hvorki hefur
fengið bót meina sinna hjá
heimilislæknum né á sjúkra-
húsum, hefur leitað til Ástu
með vænlegum árangri. í
tímaritinu Hollefni og heilsu-
rækt voru á sínum tíma birtar
myndir af barni sem hafði
hlotið alvarleg brunasár.
Barnið var í meðferð hjá Ástu
og tókst furðu vel að græða
sár þess með brunasmyrsli
sem amma hennar og faðir
bjuggu til og notuðu með góð-
um árangri. Aö sögn Ástu er
smyrslið svo frábært að ef
sjúklingurinn kemur nógu
snemma er hægt að græða
sárið þannig að ör myndist
ekki. Þetta geta læknar síður.
Ásta segir að hluti af skýring-
unni liggi í því aö lyfjafram-
leiðendur einangri efni í jurt-
unum í stað þess að nota jurt-
ina alla. Á þann hátt rjúfa þeir
lífkeðjuna og veikja um leið
lækningamátt lyfsins.
JURTALYF SEM LÆKNA
ÝMSA SJÚKDÓMA
Slík meðul í stórum skömmt-
um, auk geisla sem læknar
nota oft við illkynja sjúkdóma,
hafa í för meö sér alvarlegar
aukaverkanir og jafnvel
skemmdir á líffærum. Ásta
segist hins vegar hafa í fórum
sínum jurtir sem „vinna gegn
þessum aukaáhrifum og
styrkja meðal annars lifrina,
hjartaö, slímhúð og ýmsa inn-
kirtla og draga úr ógleði, lyst-
arleysi og vanlíðan, en stund-
um kveður svo rammt að
þessu að hætta verður lyfja-
meöferö”.
Einnig eru til jurtalyf sem
geta hjálpað sjúklingum með
hjarta- og æðasjúkdóma eins
og til dæmis kransæðasjúk-
dóma. Liðagigt hefur Ásta
læknaö og er meðferðin við
henni mismunandi, ýmist í
formi áburðar eða inn-
töku, hvort tveggja búiö
til úr jurtum. Stundum
dugir ekkert annað en
að brenna. Ásta skýrir
þetta nánar: „Þá eru
settar olíur í kompress-
ur (bakstra) og látnar
liggja við liðina í átta
til tólf tíma. Það
brennur undan
þessu og myndast
blöörur sem eru
fullar af vökva
sem stundum er
glær en getur
orðið þykk, gul
leðja. Oþverri eða
eiturefni virðast
hreinsast þannig
af liöunum.”
Einnig duga vel
ýmis ráð íslenskra
grasalækna viö húð-
sjúkdómum, fótasár-
um, kölkun í liðum og
gyllinæð sem hægt er
að lækna á örfáum dögum.
Aðspurð um hvað hægt væri Reyrgresi
að gera gegn kvefpestum og
slappleika svaraöi Asta:
„Þaö er gott að klippa
knúppana ofan af baldurs-
bránni og þurrka þá, ég tala
nú ekki um ef þú getur náð
þér í birkilauf. Það er ansi
styrkjandi að sjóða te af þessu
og drekka það. Mjaðarjurt og
blóðberg er líka mjög gott í te
en blóðbergið er reyndar dálít-
ið hart í maga. Fjallagrös eru
líka góð og maður fær fallega
húð af þeim en þó eru þau að-
allega notuð í tengslum við
truflanir á skjaldkirtli og horm-
ónastarfsemi.”
30 VIKAN 17.TBL. 1993