Vikan - 26.08.1993, Síða 34
STIGAGJÖF:
Þú færö eitt stig fyrir hvert rétt
svar. Ef fleiri en eitt svar telst
rétt er þaö vegna þess aö
mjög lítið ber á milli.
1. A) er rétta svarið. Meðal-
hæöin er 175 cm. Meðalhæð
manna hefur almennt hækkað
um 2,5 cm með hverri kyn-
slóð.
2. Svarið er B). Meðalþyngdin
er 78 kíló.
3. B) er svarið því að fyrir fer-
tugt er háriö fariö að þynnast
á þriðja hverjum karlmanni.
Eftir fertugt eru hins vegar
tveir af hverjum þremur farnir
aö verða ansi sköllóttir.
4. A). Fjórir af hverjum fimm
fara oftast í sturtu.
5. B) eða C). Meirihluti þeirra
karlmanna sem kaupa galla-
buxur eru ungir menn og
meöalmittismáliö á þeim bæ
er 80 cm. Eldri gallabuxnaað-
dáendur af karlkyni mælast
aö meðaltali 85 cm um sig
miðja.
6. Rétt svar er C). Samkvæmt
könnunum segjast um tveir
þriðju karlmanna leyna tilfinn-
ingum sínum.
7. B) er rétt. Ríflega hálft karl-
kynið segist sýna hörku í við-
skiptum ef það virðist „nauð-
synlegt".
HVAD
VEISTU
MIKIÐ
UM
KARL-
MENN?
8. Rétt rúmlega helmingur
karlmanna segist einhvern
tíman hafa grátið sig í svefn
af ástarsorg svo að svariö er
A).
9. Svarið er C). Já, þeir vilja
nánari tilfinningasambönd.
Gott hjá þeim.
10. Hér eiga bæði A) og B)
við. Ríkidæmið virðist ekki
ógnvekjandi en einum af
hverjum fjórum finnst mjög
fallegar konur ógnandi, einn
af fimm hræðist þær sem eru
skarpgreindar.
11. Flestir karlmenn virðast
vera þeirrar skoðunar að ástin
sé bónus í rúminu en ekki
skilyrði. Rétt svar er því C).
12. Nú á dögum hafa lang-
flestir ungir menn lent í því að
vera boðið út af konu og þeim
finnst það hið besta mál. Aö-
eins fjögur prósent upplifa
það sem eitthvað óþægilegt.
13. Svarið er A). Sambands-
slitum fylgir dapurleiki en
fæstir þjást mjög lengi. Aöeins
tíu prósent láta slíkt sig engu
varða en tuttugu og tvö pró-
sent eru mjög framlágir og
forðast konur um tíma.
14. Áttatíu prósent karla kom-
ast í mikinn ham þegar konan
á frumkvæðið að ástarleikn-
um og sjötíu og fimm prósent
eru hrifnir af æsandi undir-
fatnaði svo A) og B) eiga
bæði við. Það er hins vegar
alveg á bannlista að ræða
fyrri elskhuga sína.
15. Svarið er C). Flestum er
alveg sama.
16. Hér eiga við A) og B).
Þrjátíu og tvö prósent stigu
fyrstu skrefin í faömi unnustu
eða kærustu, jafnmargir með
konu sem þeir þekktu fremur
lítið. Aöeins níu prósent gerðu
það fyrst meö eiginkonunni á
brúðkaupsnóttina og sú tala
lækkar stöðugt.
17. Svarið er A). Sjötíu og tvö
prósent skemmtu sér konung-
lega en tuttugu og átta fóru
vonsviknir heim.
18. Aftur er það A). Þremur af
hverjum fimm karlmönnum
finnst félagi sem sýnir engin
viðbrögð draga úr lönguninni
eða drepa hana alveg.
19. C). Rúmlega helmingurinn
er ófeiminn við að orða óskir
sínar í rúminu.
20. Nánast allar kannanir síð-
ustu fimmtíu árin benda til
þess að karlmenn vilji al-
mennt njóta ásta annan hvern
dag. Svarið er því B).
21. Aöeins einn af hverjum sex
hefur áhyggjur af því að limur-
inn sé of lítill. Svarið er því A).
22. Rétt svar er A) því að
helmingurinn af karlkyninu er
ánægður með ástarlífið, takk
fyrir. Tuttugu prósent eru í
sjöunda himni - en einn af
fjórum segir það ófullnægj-
andi eða þaðan af verra.
23. Fótleggirnir hafa yfirhönd-
ina hjá sjötíu prósentum karl-
manna svo að svariö er B).
Helmingurinn tekur líka eftir
brjóstunum (en helmingurinn
af þeim er hrifnari af litlum
brjóstum en stórum).
24. B) er rétta svariö. Tveir af
hverjum þremur segjast missa
áhugann á kynlífi endrum og
eins.
25. Rúmlega helmingurinn tel-
ur sig einhvern tíma hafa
komið illa fram við eina á-
kveöna konu eða konur al-
mennt og finnur til sektar-
kenndar vegna þess. Rétt
svar er C).
26. Svarið er B) því að lang-
flestir karlmenn telja sig, með
réttu eða röngu, góða elsk-
huga.
NIÐIIRSTÖÐUR:
20-26 stig:
Það er ekki auðvelt að slá ryki
í augun á þér! Þú hefur að öll-
um llkindum afar raunsæja og
skýra hugmynd um lífið og um
karlmenn. Mundu bara að ein-
staklingar geta verið óútreikn-
anlegir - enda er það hluti af
dásemdum lífsins. Þú mátt
ekki búast við að allir karl-
menn í lífi þínu líkamnist af
síðum Kinsey-skýrslunnar.
13-19 stig:
Þú ert nokkuð vel að þér en
almennari og víðtækari þekk-
ing á eðli karlmannsins gæti
komið þér vel í dagsins önn.
Þú gætir reynt að sperra eyr-
un og fylgjast með þeim karl-
mönnum sem þú umgengst
án þess að vera nákomin
þeim (til dæmis í vinnunni).
Það gæti hjálpað þér að skilja
betur ólíkindatólið sem þú ert
í nánu sambandi við!
6-12 stig:
Þú veist að karlmenn hafa
gaman af fótbolta og gráta
ekki hömlulaust - en það
mætti skrifa bók um það sem
þú veist ekki. Getur veriö að
þetta sé ein af ástæðunum
fyrir því að þú ert alltaf að
verða fyrir vonbrigðum með
mennina í lífi þínu? Ef þú
vissir meira um á hverju þú
gætir átt von er síður hætta á
því að þú vaknir einn morgun-
inn og hugsir með þér: Frá
hvað plánetu er hann eigin-
lega?
6 stig eða minna:
Þú virðist ekki hafa minnstu
hugmynd um karlmenn, eðli
þeirra og upþlag. Þér hlýtur
að líða eins og manneskju
sem er neydd til að búa með-
al frumstæðrar þjóðar sem
hún veit ekkert um! Kannski
þú ættir að prófa að leika
mannfræðing í smátíma og
fræöast kerfisbundiö um
þessa ágætu dýrategund. Þá
myndirðu kannski ekki vera
alltaf svona standandi hissa
yfir því sem kærastanum þín-
um dettur í hug. □
34 VIKAN 17. TBL. 1993