Vikan


Vikan - 26.08.1993, Síða 44

Vikan - 26.08.1993, Síða 44
ég við jarmið í geitunum. Ég fór í ilskógarmana og gekk út til þeirra, þvoði mér við vatns- borðið og synti um stund í svölu vatninu áður en ég hljóp aftur heim að húsinu, læddist hljóðlega inn og fór að setja mat á borðið. Hún svaf vært, það var greinilegt að hún hafði komið fótgangandi þennan langa veg frá Lakem. Þegar ég lét heita steininn í vatnsfatið gægðist hún bros- andi undan skinnunum. Ó, guö, hún hlaut að vera völva. Þegar við vorum að borða sagði hún: - Ég hlýt að geta komist til Bralavan í dag. Ég tek á mig krók við sígauna- byggðina, það er einfalt. - Fólkið úr fjallahéruðunum er hraust, hugsaöi ég en sagði ekkert. - Ég get siglt til Bralavan, ég þarf hvort sem er að fara þangað, ég þarf að kaupa ýmislegt. - Þú segist geta ferjað mig, er það ekki allt of mikið? - Ég get alveg eins farið í dag, svaraöi ég. - Nú skaltu reyna að borða vel og drekka mjólk, ég á meira en ég þarf en þér finnst kannski maturinn minn vondur. - Heima hjá mér borðuðum við aðallega bygggraut og súrur sem við tíndum - og grös. Á haustin fengum við geitakjöt. Við vorum fátæk, sagði hún hljóðlátlega. - Ég hef aldrei borðaö svona góð- an mat. - Ófuð þið teppi? - Við amma sátum alltaf viö að vefa, fínni teppin hnýttum við en maöurinn borgaði ekki mikiö. Við höfðum ekki einu sinni fyrir nógu byggi en amma vissi hvar hægt var aö tína ætar jurtir og ég klifraði upp í björg og gljúfur til aö ná í þær. Én amma mín elskuleg er dáin, hún var orðin svo gömul. Þegar ég var orðin ein datt mér í hug að fara til Bra- lavan. - Ó, ertu einstæðingur? sagði ég. - Ég á heldur ekki neina ættingja hérna en það gerir ekki svo mikið til, það er ágætt að vera einbúi um hríð. Ég kann vel viö það. Ég lifi af því aö veiða og svo á ég svo- lítinn akur og geiturnar. Faðir minn býr rétt hjá Bralavan og er líka veiðimaöur. Þaö er ekki eins mikill fiskur þar og viö gátum ekki búið saman. Hann verður óöur þegar hann drekkur, hann hefur drukkiö sakem alla ævi. Fólkið í kyn- þætti okkar má ekki drekka þetta sterka en hann drekkur samt, svo hann hefur misst atkvæöisréttinn. - Ertu frá Lakem? spurði ég. - Þú hlýtur að vita það. Eg bý ekki í sjálfu þorpinu, svolít- ið utan við þorpið, nálægt brúnni sem liggur yfir giliö, þar sem áin fellur djúpt niður. Við höfum útsýni yfir sléttlendið hinum megin við fjöllin og líka hérna megin. Er Bralavan stór bær? - Það búa þar um þúsund manns. - Nú, þúsund manns. Ég hef aldrei komið í stóran bæ. Ég ætla að fara til móðurbróö- ur míns í Bralavan. Við lukum við máltíðina og sögðum ekkert á meðan. Ég náöi í besta seglið mitt, það rauða, og bar það niður að bátnum. Þaö var of þungt að róa svona bát alla leið til Bralavan en morgunvindurinn var að koma yfir sléttlendið svo þaö yrði ágætt leiði. Og vindurinn frá fjöllunum við Bralavan myndi fleyta mér heim um kvöldiö, það gat ekki betra verið. Á sumrin var vind- urinn alltaf sá sami en eitt haustið varð ég að bíða tvo sólarhringa í Bralavan eftir leiði og geiturnar voru að ær- ast þegar ég lagði bátnum að ströndinni. Sipo gamli hafði samt mjólkað þær fyrir mig. Nú fór ég meö mjólkina sem afgangs var til hans. Hann þóttist verða reiður. - Held- urðu aö ég eigi ekki mjólk sjálfur, hvolpurinn þinn, tuldr- aði hann. Ég lyfti stúlkunni upp og bar hana út í bátinn. Hún var þyngri en ég hélt að hún gæti verið en hár hennar ilmaði yndislega. Vindurinn jókst og okkur fleygði áfram. - Vatnið hérna er stórt. Hvar veiðið þið fiskinn? spuröi hún og horfði til strandarinnar í fjarska. - Þarna - þarna og þarna, sagði ég og benti kjánalega út í loftið. - Þú ert kannski sautján ára? - Ég er rúmlega sautján, ég er að verða gömul. Tennurnar komu í Ijós, skínandi perluraö- ir og við hlógum bæði. - Þá áttu trúlega festar- mann í Lakem? - Svo á að heita, svaraði hún rólega og brosti með sjálfri sér. Hún sat við hlið mér aftur í og ég starði á pink- ilinn á botni bátsins. - Við ófum og hnýttum teppin fyrir hann. Hann á margar geitur og stórt hús í Lakem, sagði hún. - Hann er ríkur, hann selur teppin okkar til kaupmannanna í Resjt og í Tavris, sagði amma mér. En hann er kominn yfir fimmtugt svo ég flúði til að komast til móðurbróður míns í Bralavan. Amma tók loforð af mér, ég lofaði aö fara til festarmanns míns þegar hún væri dáin en ég sagði alltaf „ekki" í hugan- um þegar ég var að lofa þessu. Er það synd? - Nei, það er ekki synd. Það hefur enginn rétt til að krefjast slíkra loforða, það hafa allir leyfi til að ráða sér sjálfir. - Ekki konur? - Jú, líka konur. Ég hef les- ið um það og líka hugsað um það. í okkar ætt eru konurnar jafnréttháar og karlmenn. Kúgun á konum, sem er við- höfð í þessu landi, er á móti lögunum, hún er ekki réttmæt. Það getur engin manneskja átt aðra manneskju, ég hef líka lesiö um það og hugsað mikið um það. Þeir lærðu staðfesta þaö líka í bókunum. - Þú kannt þá að lesa. Ég kann ekki að lesa, sagði hún hrygg í bragöi. - Ég lærði það í Bralavan og ég hugsa mikið þegar ég er að veiða. Þá kemst ég oft að því að ég hugsa það sama og hinir vitru hafa hugsað á undan mér. - Eru margir lærðir? - Já, í stóru borgunum eru margir sem aldrei vinna, sitja bara og hugsa og skrifa niður í bækur. Við töluðum mikið saman, alveg þangað til viö sáum fyrstu húsin í Bralavan. Þá þagnaði hún en sagði síðan: - Þetta er stór bær. - Hlakkarðu til að búa í bænum? - Já, svaraði hún og brosti. Einhver ríkur maður kaupir fljótlega svona fallega unga stúlku, hugsaði ég. Hún er ekki völva frá fjöllunum. Hún fer að setja hveiti í andlitið, klæöast glansandi rauðum og bláum kjólum, málar neglurn- ar og setur hringi í eyrun. Já, hún verður kannski eins og sálarlausu konurnar í húsun- um fjórum bak við kirkjugarð- inn. Svo selur hann hana aftur og fær sér aðra yngri og þeg- ar búið er að selja hana nokkrum sinnum fer hún kannski í eitt af húsunum, glatar sálinni og drekkur sakem. Ég lagði bátnum rétt hjá bát föður míns. Hann öskraði til mín, hann var drukkinn eins og venjulega. Tveir veiðimenn stóðu hjá og brostu þegar þeir sáu ungu stúlkuna. Ég þekkti þá og heilsaði. Þetta voru góðir menn sem ekki drukku. - Móðir mín biður að heilsa þér, sagði annar þeirra. Ég svaraði: - Berðu henni kveðju mína. Ég sagði þeim aö ég ætlaði að fylgja stúlkunni til móöurbróður hennar. Þeir þekktu veitingastofuna hans. Mig langaði til að bera pink- ilinn fyrir völvuna mína en ég gat auðvitað ekki gert það, það myndu allir hlæja í þess- um kjánalega bæ, kannski hún líka. Hún gekk við hlið mér, þráðbein - milli húsanna og yfir torgið. Það litu margir í áttina til hennar, einn sneri sér við og brosti. - Hvað vill hann mér? - Þú ert komin til Bralavan. - Þeir eru ekki hæverskir að brosa svona til ókunnugrar stúlku. - Þú verður að muna að þú ert í Bralavan og þaö eru ekki allir hæverskir hér. - Lítur þú nokkurn tíma svona á stúlkur? - Ég á ekki heima í Bra- lavan, sagði ég stuttlega. - Þú kemur oft hingað. Áttu festarmey? - Ég átti festarmey en svo vildi hún mig ekki. Faðir minn drakk og varð sér til skammar og hún vildi mig ekki. - Þá hefur hún ekki verið góð. - Jú, hún var góð en hún gat ekki yfirgefið móður sína, hún var eitthvað skrýtin í höfðinu. - Þá hefur þú grátið - hefur auðvitað grátið mikið. - Nú ertu alls ekki góð stúlka. Ég grét alls ekki neitt, ég var feginn þegar hún vildi mig ekki. Völvan mín nam staðar og horfði á mig með tár í augun- um, svo sagði hún: - Ekki vera mér reiður, þú hefur ver- ið mér svo góður, fyrirgefðu. - Það er fyrirgefið. Ég er ekkert öðruvísi en aörir. Nú langar mig til að spyrja þig að nafni. Ég heiti Arpad. - Ég heiti Manjane. Arpad er fallegt nafn. - Þú heitir líka fallegu nafni. Manjane er gamalt heiti á sól og sólarupprás. Þar sem við erum að skilja langar mig að segja aö ég mun sakna þín. - Ég mun líka sakna þín. - Þakka þér fyrir þaö. Við gengum áfram og kom- um fljótlega að veitingahúsi frænda hennar. Það var lítið og óhreint og fullt af flugum. Móöurbróðirinn starði á hana. Hann var feitur og var með ó- hreina svuntu, bleikfeitur eins og grís, með kolsvört, lítil stingandi augu. Hún sagði: - 44 VIKAN 17.TBL. 1993

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.