Vikan - 26.08.1993, Síða 46
töluöum lengi saman og vor-
um á eitt sáttir. Hann sagði að
ég gæti svo sótt skjölin síðar
um daginn.
Ég bað hann um hundrað
silfurpeninga. Hann flýtti sér
inn og kom aftur um hæl með
þungt peningaskrín í höndun-
um.
Þegar ég hafði fengið pen-
ingana gekk ég á fund gamla
kennarans míns. Hann heitir
Hamun og bjó í litlu steinhúsi
við stíginn sem lá upp að
hæðunum viö Bralavan. Hann
var nú oröinn mjög gamall, lít-
ill, visinn og fátækur en augun
voru skær og greindarleg.
Hann bauð mér auðvitaö inn
en ég varö að sæta byr til að
komast aftur heim svo ég rétti
honum fimmtíu silfurpeninga.
Hann skildi þetta ekki og varð
alveg ringlaður. Hann gat ekki
tekið við svo miklum pening-
um af fátækum veiðimanni.
Ég sagði honum að ég væri
ekki svo fátækur lengur en ég
talaði ekkert um perlurnar. Ég
sagöi honum að ég hefði veitt
vel og að byggið og geiturnar
gæfu mér töluvert í aðra
hönd. Ég gat loksins talað um
fyrir honum og svo lofaði ég
að láta hann hafa fisk með
haustinu, eitthvað af byggi og
fleiri silfurpeninga. Ég sagði
honum að ég skuldaði honum
miklu meira, það væri líka
aumi maðurinn sem ekki
borgaöi skuldir sínar þegar
hann gæti.
- Þú kenndir mér það sem
enginn af veiðimönnunum
kann, þú kenndir mér að lesa
og skrifa og reikna. Þú sagðir
mér frá ókunnugum löndum,
fólkinu og dýrunum og þú lof-
aðir mér að skoöa myndirnar í
stóru þókunum þínum. Ætti ég
ekki að greiða þér fyrir það?
sagði ég. Ég sagöi honum líka
að mér þætti leitt að hafa ekki
getað greitt þetta fyrr. Sonur á
að greiða skuldir föður síns,
faöir sonar síns og vinur greið-
ir fyrir vin sinn, þetta hafði
hann sjálfur kennt mér.
- Arpad, Arpad, ég sagði
það alltaf aö þú værir mikið
og gott mannsefni, þú ert líka
laglegasti ungi maðurinn hér
um slóðir, sagöi hann til að
gleöja mig. Hann var með tár-
in í augunum þegar hann
faðmaði mig.
- Segðu mér nú sannleik-
ann, heldurðu að fólk fyrirlíti
mig vegna þess aö faöir minn
drekkur og fær æði? spurði
ég angistarfullur.
- Arpad, Arpad. Nei, eng-
inn eða næstum því enginn.
Já, þeir eru heimskir sem
gera það og maður á aldrei
að hlusta á það sem heimskir
menn segja. Sterkir menn
skipta sér ekki af því sem
hvíslað er í krókunum. Hjá
þeim heimsku er ekkert sam-
band milli tungu og heila.
- Þú hefur á réttu að
standa, sagði ég. - Ég skal
ekki taka mark á heimskuhjali,
ég skal reyna að verða styrk-
ur maður og góður. Þeir eru
ekki vondir, það eru engir
menn vondir en þeir hafa ekki
meira vit, þeir eru aumkunar-
verðir. Já, þeir eru engu
skynugri en dýrin. Það verður
að hjálpa þeim sem ekki skilja
þetur.
- Ó, Arpad, ef allir væru
eins og þú, sagði hann með
alvarlegri röddu.
- Ef viö lærðum aö hjálpa
hver öðrum væri friðsælla á
þessari jörð. En - en...
Skjölin voru tilbúin, teppa-
salinn hélt sínum hluta þeirra,
óskaði mér góörar ferðar og
góðrar heilsu um alla framtíð.
Ég sótti sjónaukann og gekk
svo niður að bátnum. Ungur
og fátækur ættingi heilsaði
mér vingjarnlega. Ég bað
hann fyrir tíu silfurpeninga til
móður minnar og meö mestu
leynd rétti ég honum sjálfum
fimm. - Ætti ég að taka við
þóknun fyrir að gera þér
greiöa, sagöi hann og það var
eins og honum sárnaði. -
Taktu við peningunum, sagöi
ég ákveðinn. - Þú hefur meiri
þörf fyrir þá en ég og svo kem
ég og hjálpa þér viö uppsker-
una, þá getum við talaö betur
saman. Þú þarft að fá betri
bát og betri net, annars kemst
þú ekkert áfram.
Vindurinn þar mig léttilega
yfir vatnið og geiturnar jörm-
uðu þegar ég lenti þátnum.
En kyrrðin var þrúgandi.
Stjörnurnar á himinhvolfinu og
spegilmynd þeirra á vatninu
gerðu mér þungt fyrir þrjósti.
Ég sem ætíö hafði sofiö eins
og steinn á dimmum nóttum
bylti mér nú vansvefta í rúm-
inu og geiturnar heyrðu þaö,
urðu órólegar og fóru að
stanga húsvegginn. Ég gat
ekki afboriö þetta svo ég gekk
nakinn niður að vatnsboröinu,
fór út í bátinn og reri aö
merkjalínunni við árósinn. Þar
var lítið dýpi og ég skóf upp
nokkrar skeljar. Og í hvert
sinn sem ég kom með höfuðið
upp úr vatninu og horfði á
mánasigðina og blikandi
stjörnurnar fann ég ekki til
neinnar gleði yfir perlunum
sem ég þó gat breytt í gull-
peninga og hjálpað allri fjöl-
skyldu minni, bjargað henni
frá fátækt og eymd.
- Þú ert sjúkur, Arpad, þú
ert eins og fábjáni, það er
eins og þú hafir meinsemd [
höfðinu, rétt eins og faðir
þinn, sagði ég við sjálfan mig.
Til hvers var ég að þessu? Ég
veiddi fisk allan daginn, rækt-
aöi bygg og sótti perlur í djúp-
ið, en hvað stoðaði mér það?
Ég hafði lánið með mér en
samt var ég ekki glaður. Ég
hlaut að vera eitthvað veikur
en samt var ég frískur eins og
fiskurinn í vatninu.
Tvö tunglskipti voru liðin og
vindurinn frá fjöllunum varð æ
svalari. Ég ætlaði að fara
morguninn eftir til Bralavan.
Teppasalinn bjóst áreiöanlega
við mér og fötin mín voru ör-
ugglega tilbúin fyrir löngu. Ég
breiddi úr netunum og kveið
nóttinni löngu sem ég átti í
vændum. Geiturnar hoppuðu
af gleði þegar ég gaf þeim
aukaskammt af byggi. Geitur
eru eins og börn, þær stöng-
uðu mig og kumruðu af á-
nægju.
Skuggarnir læddust nú
fljótt yfir, frá fjöllunum í vestri.
Ég sótti sjónaukann og horfði
yfir skarðið sem var langt í
burtu. Höllina hans Mívanis
gamla bar við himin, ég sá
hana greinilega [ sjónaukan-
um. Ég horfði líka yfir vatniö
og upp að bænum hans
Sipos gamla. Þannig hafði ég
staðið einn kvöld eftir kvöld
þar til sólin gekk til viðar.
Þegar ég sneri aftur að hús-
inu sá ég ungu stúlkuna
koma eftir stígnum. Hún var
bein í baki og hnarreist og
hélt á pinklinum rauða, rykið
lá yfir svarta kjólnum og hún
var þreytt.
- Svo þú kemur gangandi,
kallaði ég og ég gat ekki leynt
gleði minni.
- Já, ég kem gangandi frá
Bralavan, svaraði hún þreytu-
lega og reyndi að brosa. Ó,
hún var eins og völvan frá
skógunum, hátt uppi í fjalli viö
Lakem.
- Vertu velkomin, komdu
þér strax inn. Við skulum
borða rétt strax, sagði ég
glaðlega og hneigði mig,
næstum eins og herramaður.
- Kærar þakkir, herra Arpad,
sagði hún.
- Hvað var með sígaun-
ana?
- Ég gekk stóran hring utan
um bústaði þeirra, þeir sáu
mig ekki.
- Allir fjallabúar eru hugrakk-
ir, hugsaði ég. Hún drakk strax
einn bolla af mjólk og settist
svo álút á bekkinn undir glugg-
anum og lokaði augunum. Ég
bar á borðiö dökkt brauö og
bygggraut, fisk og kál. - Borð-
aðu nú, meöan ég breiði úr
síöasta netinu, sagði ég fljótt. -
Það er líka þvottavatn í skál-
inni. Ég kem bráðum inn og þá
borðum við saman. Þú ert
þreytt.
- Ég er hræðilega þreytt, ég
lagði af stað eftir sólsetur í
gærkvöldi, sagði hún lágmælt
og hallaði sér að steinveggn-
um.
Þegar ég kom aftur og sett-
ist aö borðinu sá ég að hún var
töluvert hressari.
- Ætlaröu að fara til Lakem?
spurði ég.
Hún varð alvarleg í bragði,
leit niður á boröið.
- Ég gat ekki verið hjá móð-
urbróöur mínum lengur þegar
Afandinn byrjaði að venja kom-
ur sínar þangað, sagði hún.
- Vildi hann fá þig til s(n?
- Já, hann vildi kaupa mig.
- Þú ert svo falleg.
- Hann býr í Lakem, sá sem
ég var föstnuð.
- Þú ætlar þá til hans?
Hún lyfti höfðinu og leit á
mig. - Eg hef engan stað að
hverfa til, hvíslaði hún og leit
niður á grannar hendur sínar.
Þá hrökk út úr mér: - Manja-
ne, ég er aðeins fátækur veiði-
maður. Ég hef verið sjúkur af
þrá eftir þér. Hefur þér aldrei
orðið hugsaö til mín?
Hún leit á mig svo ég stirðn-
aði upþ og rétti mér höndina
yfir borðið.
- Hvers vegna komstu ekki,
Arpad? spurði hún. - Ég hef
grátið dag og nótt, ég er orðin
gömul og Ijót af gráti. Er ég
það ekki?
Þá hlógum við bæði svo hátt
að geiturnar fóru að stanga
vegginn eins og þær vildu
reyna að ná tali af okkur. □
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
+ + + + + + + ö + S + + + Æ + + + G
+ + + + + V A N S K A p A Ð U R + 0
+ + + + + A L G E K + A L U R + 0 R
+ + + + + N V + G 0 L U + R Æ L L T
+ + + + + G A N G L E R I + p A F A
+ E I N V A L A + L I T N I N G A R
+ G L E I D D + M + F A + N A F L I
F Y L I N A + H A F + P A 'T’ R ó D +
+ P + T U N G U T A K + R E + T I F
S T A U R S + G A L L + K R ó A + .i
+ A G N + 4 F U R A + T A P A + M *
L A + E I N M U N A + + 0 R G E L
+ A + F R E Y S + G R I L L + E D A
s N A li + Ý K 'T’ + I Ð + E + A S + N
+ D R E S 5 + ó L S A R I + R + P +
+ + G R A A G R A T N A R + F E R N
L E S I + S A + s T -K K + G E R j A
+ R A S s K I N N + K A R A R F A R
+ + M + E R R + U M + R A U Ð A + R
+ L U M M A + ó M + G A U M I + H A
+ A R 0 + T 1 L + V A M M S + S N 0
+ N + L E T R A + A N i S + S K ú R
+ D A D D I + F + N A N D + E Y Ð I
+ + P Ý R A M i D A N N A + G R A L
N E I R o S G A R R I + L. B T T + L
V A N D R Æ Ð A M A Ð U kI V R A T I
46 VIKAN 17.TBL. 1993