Vikan - 26.08.1993, Page 49
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
því aö liggja í dimmu her-
bergi meö klakapoka á enn-
inu og upp í sterk verkjalyf
sem draga útvíkkaðar æðar
saman. Oft geta lyf gegn
þunglyndi hjálþað, ekki
vegna þess aö sjúklingurinn
sé endilega þunglyndur held-
ur vegna þess aö slík lyf
draga úr myndun ýmissa ó-
æskiiegra efnasambanda í
heilanum.
Því miður er fátt til ráða fyrir
ákveöinn hluta mígrenisjúk-
linga en nýtt lyf, sumatriptan,
kann aö ráöa bót á einhverju.
Kannanir sýna aö allt aö 80
prósent mígrenisjúklinga, sem
höföu tekið lyfiö, losnuöu nán-
ast alveg viö sársaukann,
með litlum sem engum auka-
verkunum.
KLASAHÖFUÐVERKUR
Mígreni og spennuhöfuöverk-
ur hrjáir einkum konur en karl-
menn fá frekar svokallaðan
klasahöfuöverk. Þess háttar
verkur á þaö til aö endurtaka
sig dag eftir dag í nokkrar vik-
ur eöa mánuöi en hverfa þess
á milli í hálft ár eða ár.
Ástæður klasahöfuðverkjar
eru óljósar en verkurinn er
mjög svipaður mígreniverkjum
þar sem einnig er um aö
ræöa útvíkkun og samdrátt
æöa. Munurinn er sá að sárs-
aukinn er enn meiri. Hann er
svipaður því aö vera stunginn
í auga, kjálka eöa kinn; annaö
augaö getur lamast, flóaö í
tárum eða þrútnaö eða önnur
nösin orðið algerlega stífluö.
Þetta veldur því aö oft er
klasahöfuðverkur fyrir mis-
skilning talinn ennisholubólga.
Þessi köst standa þó sem
betur fer sjaldnast lengur en
hálftíma til einn og hálfan
klukkutíma.
Áfengisneysla er þaö sem
oftast kemur af staö klasahöf-
uðverk. Þó telja læknar að
breytingar á svefnvenjum geti
einnig komiö þeim af staö.
Rannsóknir sýna að versti
tíminn er í janúar og í júlí,
þegar breytingar á dagsbirtu
eru mestar.
Ergotamine er lyf sem jafn-
ar æðasamdrátt og getur
dregiö úr kasti en sterar eða
liþíumkolsýrusalt geta, ef tekið
er inn strax og von er á kasti,
komið algerlega i veg fyrir
það. Merkasta nýlega uþþ-
götvunin er þó súrefnismeð-
ferö. Svo virðist sem hreint
súrefni geti af einhverjum enn
óþekktum ástæöum slegið á
kastið. Því er þaö aö margir
sem þjást af klasahöfuðverk
hafa á sér lítinn súrefnisgeymi
hvert sem þeir fara.
AÐRAR ÁSTÆÐUR
Ótal óljósar ástæður geta leg-
iö á bak við höfuðverk. Viö
samfarir spennast vöövar í
höföi og hálsi, hjartsláttur
verður örari og blóðþrýstingur
hækkar. i sumum tilfellum get-
ur þetta valdið höfuðverk. Þó
er oft nóg viö slíkar aðstæður
aö slaka vel á. Sé þetta þrálátt
er hægt aö koma í veg fyrir
það með því að taka inn
bólgueyðandi eöa vöðvaslak-
andi lyf fyrir samfarir.
Fólk getur fengiö höfuöverk
ef þaö er svangt og líka ef
þaö er nýbúið aö borða. Al-
gengir sökudólgar eru kaldar
fæöutegundir á borö viö
rjómaís, bragöefnið MSG
(mónosódíum glútamat) og
mjög saltríkar fæðutegundir
eins og pylsur. Oftast er slíkur
höfuöverkur daufur og breiöist
út um allt höfuöiö. Best er aö
forðast þá fæðu sem höfuö-
verknum veldur. Læknavís-
indin eiga enn eftir aö komast
aö því hvers vegna svengd
getur valdið höfuöverk en viö
því er einfalt ráö aö borða sig
saddan meö reglulegu milli-
bili.
Flestir kannast viö þá gerö
höfuöverkjar sem fylgir timb-
urmönnum. Besta ráöiö viö
slíkum höfuöverk er að taka
létta verkjatöflu, drekka mikiö
og hvílast. Meö hóflegri
drykkju má auövitaö sneiða
hjá þessu vandamáli!
Þrálát ennisholubólga veld-
ur oft höfuöverk, oftast rétt
fyrir ofan og neðan augun en
meö fúkalyfjum hverfur slík
bólga á nokkrum dögum. Þá
geta skemmdir í tönnum og
bólga í tannrót valdið slæm-
um höfuðverk en hann hverfur
þegar gert hefur verið viö
tönnina.
Alvarlegra er þegar höfuö-
verkurinn reynist vera
vefrænn, það er af völdum
sjúkdóms. Slíkur höfuöverkur
eru sjaldgæfur en afar ó-
skemmtilegur og flestir reikna
strax meö því aö ástæöan sé
einhver skelfilegur sjúkdómur
eins og heilaæxli. Svo er þó
sjaldnast en oft er um að
ræöa afleiðingar heilablóðfalls
eða slagæðagúlps. Viölíka al-
varlegur er höfuðverkur sem
stafar af áverkum eins og höf-
uöhöggi eöa hálshnykk. Þess
háttar höfuðverkur líkist oft
mígreni. Ef grunur leikur á að
höfuöverkurinn sé af þessu
tagi skal umsvifalaust leita
læknis. Þá er hægt aö rann-
saka uppsprettu verkjarins ná-
kvæmlega meö sneiömynda-
töku og öörum hátækniaðferð-
um og leita ráöa. .□
Er ekki kominn
tími til að fá sér?
■ Andlitsbað - Unnið úr
Repéchage snyrtivörum
■ HúShreinsun
■ Handsnyrtingu
■ Fótsnyrtingu
■ VaxmeSferð eða litun
S T 0 F A N
. IM • N •
BORGARKRINGLUNNI • S: 685535
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir. Elva B. Ævarsdóttir,
Halla R. Ólafsdóttír.
VELKOMINA SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR 1
ROFABÆ 39 - SIMI 68 - 93 - 10 |
► ANDLITSBOÐ
► HÚÐHREINSUN
► LITUN
► PLOKKUN
► VAX-MEÐFERÐ
► FÓTSNYRTING
► FÖRÐUN
HULDA
SERMEÐFERÐ:
JURTAMASKI: f. bóluhúð, f. hóræðoslit,
f. eldri húð. HITAMASKI: f. þurra húð,
f. óhreina húð, f. vannærða húð.
AUGNMASKI: f. poka og hrukkur.
SILKINEGLUR • TRIM FORM • GERUM GÖT í EYRU
HÁRSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 <p 62 61 62
RMARA- <t HÁRqRE/ÐSMSTDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVlK