Vikan - 26.08.1993, Síða 62
I
tuðaði eitthvað á spönsku.
Okkur fannst þetta allfyndiö
en svo kom upp úr kafinu að
hann langði í bol eins og ég
var í. Þá ósk hans uppfylltum
við í snarheitum en héldum
síðan áleiöis til bæjar í leit að
Ogi. Eftir töluverða leit fund-
um við hann þar sem hann
var að reyna að semja um
sanngjarnt verð við trukkbíl-
stjóra nokkurn.
HVER ÞARF
SVO SEM SJÁLFVIRKA
ÞVOTTAVÉL?
Þegar til Banjos var komið
slógum við upp búðum rétt
ofan við fjallaþorpið, við heitar
uppsprettulindir og skelltum
okkur auðvitað í bað. Þar sem
flest fötin mín voru orðin
býsna skítug var þetta líka
kjörið tækifæri til aö þvo af sér
garmana. Til aö slá tvær flug-
ur í einu höggi rifjaði ég upp
þvottatækni sem mikið var
notuð í Afríku, það er að segja
að skella sér undir bununa i
öllum fötunum og skrúbba
bara allt heila klabbið - bað-
glöðum innfæddum til mikillar
furðu og kátínu. Snemma var
lagst til svefns þetta kvöld því
við ætluðum aö freista þess
að komast til landamærabæj-
arins Tumbes um miðbik
næsta dags og vonandi yfir
landamærin til Perú.
ÖNGÞVEITI í TUMBES
Þrátt fyrir að við legðum
snemma af stað jókst um-
ferðin jafnt og þétt eftir þvi
sem nær dró Tumbes og á
endanum var þetta orðið al-
gert öngþveiti. Tumbes er
reyndar ekkert annað en
gríðarstór útimarkaður, aöal-
lega tilkominn sökum þess
hversu gifurlegur munur er á
verðlagi í þessum tveimur
löndum. Flest er allt að því
helmingi ódýrara í Ecuador
en Perú. Þar sem öll umferð
var stopp varð úr að Bob og
Riff uröu eftir í jeppanum
meðan við Ogi freistuðum
þess að ganga að brúnni þar
sem vel vopnum búnir
landamæraverðir stóðu vakt.
Þegar þangað kom fengum
við þær upplýsingar að ekki
væri nokkur von til þess að
komast yfir landamærin þann
daginn. Eftir að við höfðum
sýnt vegabréfin okkar og
aðra nauðsynlega pappíra
var okkur lofaö öllu fögru um
að við kæmumst yfir morg-
uninn eftir ef við yrðum nógu
snemma í því.
Ekki sýndist okkur fýsilegt
að dvelja þarna um nóttina
sökum mannfjölda, hávaða
og síðast en ekki síst gat
bókstaflega allur okkar far-
angur horfið á augabragði
þrátt fyrir læstan bílinn. Viö
brugöum þvi á það ráð að
snúa við og halda aftur inn f
Ecuador í von um að finna
kyrrlátan stað fyrir nóttina.
Þar sem við uröum að halda
okkur eins nálægt landa-
mærunum og mögulegt var
stönsuðum viö á fyrstu ban-
anaplantekrunni sem varð á
vegi okkar og spurðum
bónda hvort við mættum ekki
hafa þar svefnstaö fyrir litinn
pening. Ekki tók hann illa í
þaö og eftir aö hafa samið
um verö fór hann með okkur
út fyrir bananaekruna og að
áveitulónum sem hann sagði
okkur að einnig væru notuð
til að rækta rækjur. Ef okkur
langaöi í ferskar rækjur
sagöi hann að okkur væri
velkomið aö kasta út
nokkrum netum og sjá hvort
við yröum ekki heppnir. Það
er skemmst frá því að segja
að þremur tímum seinna lág-
um viö í kringum eldinn okk-
ar alsælir yfir þessari óvæntu
og bragögóðu máltíð okkar.
STÓRBROTNAR
ANDSTÆÐUR
Um hálffimmleytiö næsta
morgun vorum við síöan
komnir til Tumbes og sex
tímum seinna - eftir vega-
bréfaskoðun og ítarlega leit í
jeppanum og farangri okkar
- höfðum við Ecuador að
baki og í Perú, suður af
landamærunum, tók Tum-
bes-eyðimörkin viö meö sitt
stórbrotna og síbreytilega
landslag. Mér fannst henni
um margt svipa mjög til Sa-
hara i Afríku enda hefur
aldrei nokkurn tímann mælst
þarna regn og eyðimörkin er
algjör, rofin af einstaka ár-
dölum sem liggja úr hálendi
Andesfjalla. Ef ekki væri fyrir
þessa snjóbráð úr háfjöllun-
um væri ekki um neina bú-
setu að ræða þarna í eyöi-
mörkinni en við að koma nið-
ur í þessa árdali blasa viö
hreint ótrúlegar andstæður -
annaðhvort alger eyðimörk
eða þéttgrænir árdalir þar
sem íbúarnir rækta sykureyr,
banana, bómull, maís og
hrísgrjón.
Eftir að hafa dvalist í hita
og vatnsleysi eyöimerkurinn-
ar í vikutíma náðum viö því
langþráða takmarki aö kom-
ast niður að Kyrrahafs-
strandlengju Perú. Því fylgir
stórkostleg tilfinning að kasta
sér til sunds á móti risavöxn-
um holskeflum Kyrrahafsins.
Þær geröu sér lítið fyrir og
gripu mann með ógnarafli
sínu, keyrðu með miklum
krafti niður í söndugan botn-
inn á þessari óendanlegu
eyðimerkurströnd. □
1 "i cr te | “" 1 "1 Wi <4L & / ofmF fitli uhft HuÐ- LiK/bi R. Klett- f\K- útt/lkj EídfJfíST At/tT- óuKT
> Z
FuáL UaMPP- UHÍA//J Kf\K L- FU6.L- A/JR 5TÍ/J6r Ö/lKÓ STo W Cx í * > >
RdPTu/h OK'íkk. / > ' >
HLES > 3 ? t t
(\TA > ms V
SÍ.TU.K'1 s'rtru. Vu&lL/L/L ME-S > V // >
mz $ Tóm^
/ z 3 V s 6 ? e tn'ALMt s
62 VIKAN 17.TBL. 1993
Lausnarorð í síðasta blaði: BRATTUR