Vikan - 26.08.1993, Blaðsíða 70
TEXTI: LOFTUR ATLIEIRIKSSON
ÍSLENDIN ú IIM ER
[WMm ÞÁTITAKA
ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAVERÐLAUNIN WORLD FILM ARTS AWARDS
Ár hvert fylgjast milljónir
manna um allan heim
með afhendingu ósk-
arsverðlaunanna. Það er
sammerkt öllum myndum,
ina sem er ekki á ensku.
Til að finna mótvægi við
þessari einokun mynda á
engilsaxnesku máli var stofn-
að til Cezar-verðlaunanna í
sem geta keppt um verðlaun-
in í aðalkeppninni, að þær eru
á ensku. Fjórar myndir eru
síðan valdar úr hópi mynda á
öðrum tungumálum til keppni
um óskarinn fyrir bestu mynd-
Evrópu en þar er keppt um
bestu myndina innan álfunn-
ar. Ýmsar minni og lítt þekktar
keppnir eru víða um heim en
allar eiga þær sameiginlegt
að vera svæðisbundnar. Á
næsta ári verður í fyrsta sinn
haldin keppni fyrir myndir alls
staðar úr heiminum og hefur
hún hlotið heitið World Film
Arts Awards.
Undirritaður hitti Antonio
Jalili, forstöðumann og stofn-
anda keppninnar, nýlega að
máli á skrifstofu hans f
Beverly Hills. Hann sagði að
skipulag keppninnar yrði á
þann veg að hvert þátttöku-
land gæti sent þrjár myndir og
fyrst yrði forkeppni innan mis-
munandi svæða, ísland mundi
þá falla innan Evrópu.
„Ég hef skrifað Þorsteini
Jónssyni hjá Kvikmyndasjóði
og boðið íslenskum kvik-
myndagerðarmönnum að
vera með en ekki borist svar
ennþá. Fjöldi erlendra sendi-
ráða mun Ijá keppninni stuðn-
ing og það sama er að segja
um Sameinuðu þjóðirnar og
Hvíta húsið. Fremstu kvik-
myndagerðarmenn í heimi
verða í dómnefndinni og ég
hef þegar talað við menn eins
og Fellini, Kurosawa, Spiel-
berg og Oliver Stone ásamt
fleirum.
Fyrsta verðlaunaafhending-
in verður í mars 1994 í Los
Angeles en hugmyndin er að
flytja keppnina á milli landa frá
ári til árs. Verðlaun í aðal-
keppninni verða veitt fyrir
bestu myndina, leikstjóra, leik-
ara, leikkonu og handrit. Þá
verða vinsælasta leikkonan og
leikarinn einnig valin. í svæða-
keppninni verða keppnisflokk-
arnir fleiri. Þátttökugjald er
ekkert og þeim aðilum sem
komast í úrslit verður boðið að
vera viðstaddir afhendingu
verðlaunanna.
Keppnin er fjármögnuð
með framlögum frá fjölþjóða-
fyrirtækjum sem eiga þess
kost að auglýsa í sérstakri
gervihnattaútsendingu en þar
verður sýnd úr keppnismynd-
unum og þær kynntar áhorf-
endum um allan heim. Sjón-
varpsrétturinn fyrir hvert land
er einnig hugsaður sem tekju-
lind.
Skilyrðin, sem þátttöku-
myndirnar þurfa að uppfylla,
eru að þær séu teknar á 35
mm eða 16 mm kvikmynda-
filmu og framleiddar árið fyrir
keppnina. Myndir sem gerðar
eru 1993 koma aðeins til
greina f fyrsta skiptið, þær
þurfa að hafa enskan texta og
þeim þarf að skila inn einum
til þremur mánuðum fyrir
verðlaunaafhendinguna.
Verðlaunastyttan er af karli og
konu sem rísa upp úr hnattlík-
ani og er þetta í fyrsta sinn
sem kynjunum er gert jafnhátt
undir höfði í verðlaunagrip (
keppni í þessum dúr."
Ég benti Antonio á að hafa
samband við menntamálaráð-
herra og Ferðamálaráð ís-
lands til að ná sambandi við
íslenska kvikmyndagerðar-
menn en ef einhverjir vilja fá
frekari upplýsingar um keppn-
ina geta þeir haft samband
við:
World Film Arts Awards Inc.
Mr. Antonio Jalili President
6500 Wilshire Blvd, Suite 460
Los Angeles, CA 90048
USA
MEÐAL 55 SPURNINGA í SÉRÚTGÁFU HINS VINSÆLA RITS
BLEIKT OG BLÁTT:
• Kvartað undan fantareið • Ég fæ ekki fullnægingu við samfarir • Er ég ófrjó? • Kemur sveittur og með
óburstaðar tennur ( rúmið • Slappir grindarbotnsvöðvar • Það er eitthvað bogið við tippið • Hvernig verst ég
legkrabba? • Löngun kvenna og tíöahringurinn • Tækni eiginmanns mfns er ábótavant • Hvers vegna vakna karl-
menn með stinningu? • Dregur úr kynferðislegri löngun (löngu sambandi? • Kærastinn les enn karlablöð • Hefur
ummál legganga áhrif á kynlífsánægjuna? • Hv( eru samfarir stundum sársaukafullar? • Geirvörtur hans afar
næmar • Stærð limsins og fullnæging • Samkynhneigð á unglingsárunum • Bendir samkynhneigð til geðveiki? •
Tilbreytingarlaust kynllf • Hún vill heyra grófyrði á meöan • Spillir hettan? • Skiptir kynllfsstellingin máli? •
Maðurinn minn vill nota hjálpartæki • Konan m(n vill ( kynferðislegan ferhyrning • Öflug kynnautn kringum fertugt •
Áhrif legnáms • Hve mikil sjálfsfróun er of mikil? • Þadnast fyrst rassskellingar • Haldið þið að hún sé lesbfsk? •
Hún vill drífa samfarirnar af • Verður sonur minn kynóður? • Mikill sársauki fylgir samförum • Tilbreyting stuölar að
betra kynllfi • Hvernig get óg örvað konuna mina sem best? • Kynfæri m(n verða ekki nægilega rök • Hann vill
alltaf klæðast kvenfötum • Hugsa um aðrar konur á meðan... • Kynkuldi á meðgöngutímanum • Kynllf meðan ég
hef blæöingar • KynKfs notið á efri árum.