Vikan - 01.12.1996, Qupperneq 42
UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
PLÖNIUR NOIADAR í
MARGVÍSLEGUM HLGANCp:
IffANM LOFISIUR
SEGIR ÁSTDÍS SVEINSDÓTTIR GRASAFRÆÐINGUR
PLÖNTUR ERU TIL MARGS BRÚKLEGAR OG ÞÆR MÁ NOTA í MARGVÍSLEGUM TILGANGI. í SAMTALI VIÐ
BRYNDÍSI HÓLM BLAÐAMANN GREINIR ÁSTDÍS SVEINSDÓTTIR GRASAFRÆÐINGUR FRÁ ÞVÍ AÐ AUK
ÞESS SEM ÞÆR BÆTI ÁSÝND FYRIRTÆKJA OG STOFNANA AUKI ÞÆR VELLÍÐAN FÓLKS OG GERI UM-
HVERFIÐ BÆÐI HLÝLEGT OG LIFANDI. EN ER NÓG AÐ SKVETTA VATNI Á PLÖNTUR TIL AÐ HAFA ÞÆR FAL-
LEGAR? í VIÐTALINU KEMUR í UÓS AÐ PLÖNTUR ÞURFA, RÉTT EINS OG MENNIRNIR, Á REGLU AÐ
HALDA OG ÞÆR ÞARF AÐ MEÐHÖNDLA OG SNYRTA AF UMHYGGJU EF VEL Á AÐ TAKAST.
egar framkvæmda-
stjóri fyrirtækis eins
var spuröur að því
hver ætti aö sjá um kerja-
plönturnar, sem nýbúið var
að fjárfesta i fyrir nokkur
hundruð þúsundir og koma
fyrir var svar hans á þá leið
að hann færi aldeilis ekki að
ráða sérstaka manneskju í
það að skvetta vatni á blóm-
in. Þar á bæ skyldu
starfsmenn skiptast á
að vökva. En eins og
oft vill verða gleymd-
ist það endrum og
sinnum. Eins og eng-
in regla varð á um-
hirðunni og blessuö
blómin dóu bara úr
vanrækslu eða sjúk-
dómum eitt á eftir
öðru.
Það er nefnilega
með blómin og plönt-
urnar, rétt eins og
mennina, að þau
þurfa umhyggju og
hlýju og ekki hvað
síst reglubundna
næringu. Þetta vita
nú kannski flestir en
fæstir fylgja því eftir.
Kannski vegna tíma-
skorts en þó oftar
vegna áhugaleysis.
Það kemur sér því
vel fyrir stofnanir og
fyrirtæki sem skreyta gjarn-
an umhverfi sitt með mynd-
arlegum blómakerjum að
vita til þess að hægt sé að
kaupa sér þjónustu sem sér
um þessa hluti. Og það get-
ur líka komið sér vel fyrir ein-
staklinga sem hafa annað-
hvort ekki tíma til að sinna
svona löguðu eða þurfa jafn-
vel að bregða sér frá í lengri
eða skemmri tíma.
Ástdís Sveinsdóttir sér-
hæfir sig í að setja upp
blómaker af ýmsum stærð-
um og geröum. Hún sér
einnig um að fara reglulega
til fyrirtækja og stofnana til
að vökva og snyrta þær
plöntur sem þar eru. Hún
segir viðhorf manna gagn-
vart alhliða blóma- og kerja-
plöntuþjónustu hafa breyst
mikið undanfarin ár, að fyrir-
tæki og stofnanir geri sér æ
meiri grein fyrir þýðingu þess
að láta fagmanneskju sjá um
og snyrta plönturnar og
spara þannig bæði tíma og
peninga. Ástdís útskrifaðist
með B.S. gráðu í grasafræði
frá háskólanum í San Jose í
Kaliforniu árið 1988 og fjall-
aði lokaverkefni hennar um
sögu og þróun íslensks
mosa.
LÍFFRÆÐI MEÐ
„BOTANY MAJOR"
(GRASAFRÆÐI)
„Ég þurfti að fá sérstakt
leyfi hjá heilbrigðisyfirvöldum
til að taka íslenska mosann,
ásamt öðrum plöntum, út
með mér því þetta var tals-
vert magn. Eftir að ég lauk
verkefninu mínu, sem ég
fékk góða einkunn fyrir, gaf
ég skólanum mosann og
plönturnar og var því komið
fyrir á sérstöku grasafræði-
safni skólans þar sem það
var haft til sýnis og fróðleiks.
Ástæðan fyrir því aö ég dreif
mig til Bandaríkjanna í nám
var kannski fyrst og fremst
sú að Garðyrkjuskóli ríkisins
bauð á sínum tíma ekki upp
á hefðbundið kerjaplöntu- og
blómaskreytinganám. Það
gerir hann hins vegar í dag.
Ég hafði ekki áhuga á rækt-
un heldur langaði mig að
læra uppsetningar og hönn-
un sem mér bauðst á grasa-
fræðibraut háskólans i San
Jose. Ég tók síðan á fimm
árum B.S. gráðu í líffræði,
með grasafræði sem aðal-
grein. Á útskriftarskírteininu
mínu stendur að ég hafi próf
f líffræði með „Botany ma-
jor“. Ég tók mikið af auka-
greinum í grasafræði, svo
sem plöntusjúkdóma og lýs-
ingu. Og útigróðurinn í Kali-
forníu, sem ég lærði allt um,
er svo innigróður hér á ís-
landi. Þess vegna starfa ég
eingöngu með innigróður,"
segir Ástdís. „Að loknu námi
í Kaliforníu fór ég á nám-
skeið í innanhússgróður-
skipulagi í London. Það tók
nokkrar vikur og þar kynntist
ég því hvernig fyrirtæki í
blómaþjónustu væru rekin
og sett upp. Námskeiðið var
mjög fróðlegt og á því lærði
ég mikið í tengslum við við-
skiptavini og markaðssetn-
ingu.“ Ástdís var fyrsti há-
skólamenntaði grasafræð-
ingurinn hér á landi til að
setja á laggirnar fyrirtæki í
blómaþjónustu þar sem
áhersla er lögð á uppsetn-
ingu plantna og reglulegt eft-
irlit með þeim. Fyrirtæki
hennar, Blómaþjónusta Ást-
dísar (Blómamarkaðurinn
ehf.), var stofnað síðla árs
1988. Margir af viðskiptavin-
um fyrirtækisins hafa nýtt sér
þjónustu Ástdísar um árabil.
Og stöðugt bætast fleiri við,
bæði fyrirtæki og einstakl-
ingar. „Ég þjónusta fyrirtæki,
stofnanir og jafnvel heimili
og er auðvitað í samkeppni
við stóru blómaþjónustufyrir-
tækin. Það er stundum
hringt til mín og haldið að
þetta sé í blómabúð og það
er oft búið að panta heilu
rósabúntin áður en ég loks
kemst að til að segja í hverju
mín starfsemi felst. Ég rek
ekki blómabúð og geri ekki
sérstakar skreytingar þótt ég
hafi ákveðinn bakgrunn á því
sviði. „Fallegar og vel hirtar
plöntur eru ómetanlegar fyrir
ímynd fyrirtækja, stofnana
og heimila," segir Ástdís. „Að
mínu mati hafa þær róandi
og þægileg áhrif á fólk. Þær
eyða líka skaðlegum loftteg-
undum og auka súrefni I
andrúmsloftinu þannig að
þær eru oft nauðsynlegar,
sérstaklega í nútímabygg-
ingum þar sem þörf er á að
bæta loftið með einföldum
aðferðum. „Áhugi Ástdísar á
plöntum og blómum kom
nánast af sjálfu sér. Hún var
sannkallað blómabarn, enda
alin upp innan veggja
Blómamiðstöðvarinnar sem
faðir hennar rak í 30 ár. Þau
voru þannig ófá sumrin sem
Ástdís starfaði hjá föður sín-
um og lagði honum lið við
blómin.
42 VIKAN 4. TBL. 1996