Vikan - 01.12.1996, Blaðsíða 59
hugboð mislitra tilfinninga
reyndist rétt sökum þess að
iðulega kemur í Ijós að það,
sem við fundum, átti við rök
að styðjast.
SÉRSTÆD ÞJÁLFUN
í álíka tilvikum eigum við
að reyna að greina rökrænt
hvað það nákvæmlega er í
fasi og framkomu þess sem
truflar okkur. Ef við æfum
okkur í því að setja þessa
mislitu tilfinningar upp eins
og púsluspil í huganum þá
náum við því flest smátt og
smátt að lesa úr þessum
óræðu táknum óþæginda
sem eins og hellast yfir okk-
ur nálægt vissu fólk í upphafi
viðkynningar. Það sparar
okkur óneitanlega vand-
ræðaferli óþæginda og von-
brigða ef við leggjum rækt
við þessa sérstæðu þjálfun.
Þeir, sem það hafa gert,
hafa náð árangri. Sama
sjónarmið skilnings og þjálf-
unar á við um hugboð varð-
andi mögulega sigra og
ávinninga og við þau sem
viðkoma mismiklum örðug-
leikum og hættum.
MÖGULEGUR VÍSIR AÐ
GLÆSILEGUM
TÆKIFÆRUM
Hugboð tengjast skynjun-
um sem eru að gerast eða
munu gerast og sagan sýnir
það að oftar en ekki ef hug-
boðunum hefur verið fylgt eft-
ir þá hefur verið hægt að
koma bæði í veg fyrir óhöpp
og tjón, auk þess sem hægt
hefur verið að efla á þennan
hátt mögulegar vinningslíkur
fólks af ýmsum ástæðum.
Hugboð hafa oftar en ekki
gert okkur mannlegri og sátt-
ari í sammannlegum sam-
skiptum. Engum vafa er und-
irorpið að varðandi tækifæri
og möguleika þar sem áríð-
andi hefur verið að vera fljót-
ur að taka ákvarðanir hafa
hugboð komið að góðum not-
um. Við fáum nefnilega gjarn-
an tilfinningu fyrir þvi að eitt-
hvað gott liggi í loftinu ef við
framkvæmdum þetta eða hitt.
Mörg okkar fylgja góðum
hugboðum eftir og ná glæsi-
legum árangri af ólíkum toga.
NÆMARI Á OKKAR
NÁNUSTU
Þegar við höfum lært að
treysta hugboðum okkar
aukum við líkur á því að okk-
ur lánist að komast hjá vand-
ræðum og hættum. Ekkert
síður en að okkur auðnist
frekar að nýta þau tækifæri
og höndla sem við höfum í
fyrstunni einungis óljóst hug-
boð um að liggi í loftinu.
Varðandi maka okkar og
börn þá er enginn vafi á því
að sambönd, sem byggjast
upp á viðlíka tengslum,
bjóða oftar en ekki upp á
möguleika hugboða. Við er-
um næmari á vanlíðan og
vellíðan okkar nánustu en
þeirra sem eru okkur óvið-
komandi.
DRAUMAR OG
FJARSKYNJUN
Við álítum mörg að hugboð
okkar komi ekki einungis
fram í missterkum tifinninga-
skynjunum heldur og jafn-
framt í formi drauma og fjar-
skynjana. Við aðgreinum
jafnvel ekki þessi skyldu en
þó ólíku form hvers kyns hug-
rænna skynjana. Það er þó
Ijóst að þau hugboð, sem
koma [ vöku, geta skipt sköp-
um varðandi gæfu og gengi
þess sem þau tengjast séu
þau ígrunduð og af raunsæi
og með íhugulli dómgreind.
Það þýðir þó engan veginn
að okkur auðnist endilega fyr-
irfram að skilgreina það sem
þau í raun innihalda og þýða.
Hlustum því af athygli á þau
sálrænu skilaboð sem eru
innihald hugboða og látum
ekkert tækifæri framhjá okkur
fara til þess að nýta okkur
þessa dulrænu reynslu sjálf-
um okkur og öðrum til fram-
dráttar og gæfu. Það er var-
hugavert og beinlínis hættu-
legt að nýta sér sálræna
vitund til neikvæðra hluta.
Góð hugboð geta reynst gulls
ígildi.
Wleð vinsemd,
Jóna Rúna
imim
Hvers vegna að borga
1200 kr. fyrir kvartlítra af
Aloe Vera þegar þú getur
fengið tvöfalt meira
magn af Aloe Vera geli frá
Banana Boat á aðeins 1000kr.?
Hvers vegna að bera á sig 2% af
þráavarnarefnum þegar þú getur
fengið 99,7% hreint Aloe Vera frá
Banana Boat? Biddu um Banana
Boat ef þú vilt 99,7% hreint Aloe
Vera gel á 40-60% lægra
verði. Það er alltaf ferskt
(framleitt eftir pöntun), án
spírulínu, án kemískra lyktar-
efna eða annarra ertandi of-
næmisvalda og fæst í 6 mismun
andi túpu-, brúsa- og flöskustærðum.
Þú fnnur engan mun á því að bera ferska,
99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat og
hlaup úr Aloe Vera blaði beint á sár, bólgur eða
útbrot. Prófaðu líka Banana Boat E-gelið á
sölustöðum Banana Boat (fæst einnig í 3
stærðum hjá Samtökum psori-
asis- og exemsjúklinga),
hrukkuhindrandi og húðmýkjandi
Banana Boat A-gel, baugaeyðandi
og húðstyrkjandi Banana Boat
kollagen gel, hraðgræðandi
Banana Boat varasalvann
með sólarvörn #21, græðandi,
mýkjandi og rakagefandi Banana
Boat Body Lotion með Aloe Vera,
lanolíni, A-, B-, D- og E-vítamíni,
húðnærandi og öldrunarhindrandi
Banana Boat djúpsólbrúnkugel fyrir
Ijósaböð, Banana Boat sólmarg-
faldarann sem milljónfaldar sólar-
Ijósið í skýjaveðri, Banana Boat sól-
varnarkremið með hæsta sólvarnar-
stuðulinn á markaðnum, #50, næringar-
kremin Banana Boat Brún-Án-Sólar í 3
gerðum, Naturica BK Sólbrún-lnnan-Frá,
Naturica hrukkubanann, alnáttúrlega svita-
lyktareyðinn, kristalsteininn sem þú strýkur eftir
blautum handarkrika þar sem kvikna engar lyktarbekteríur.
Biddu um Banana Boat i apótokum, á sólba&sstofum, í snyrtivömverslunum, öllum heilsubúðum utan Reykjavikur og i Heilsuvali, Barónsstig 20,® 562 6275
4. TBL. 1996 VIKAN 59