Vikan - 01.12.1996, Page 59

Vikan - 01.12.1996, Page 59
hugboð mislitra tilfinninga reyndist rétt sökum þess að iðulega kemur í Ijós að það, sem við fundum, átti við rök að styðjast. SÉRSTÆD ÞJÁLFUN í álíka tilvikum eigum við að reyna að greina rökrænt hvað það nákvæmlega er í fasi og framkomu þess sem truflar okkur. Ef við æfum okkur í því að setja þessa mislitu tilfinningar upp eins og púsluspil í huganum þá náum við því flest smátt og smátt að lesa úr þessum óræðu táknum óþæginda sem eins og hellast yfir okk- ur nálægt vissu fólk í upphafi viðkynningar. Það sparar okkur óneitanlega vand- ræðaferli óþæginda og von- brigða ef við leggjum rækt við þessa sérstæðu þjálfun. Þeir, sem það hafa gert, hafa náð árangri. Sama sjónarmið skilnings og þjálf- unar á við um hugboð varð- andi mögulega sigra og ávinninga og við þau sem viðkoma mismiklum örðug- leikum og hættum. MÖGULEGUR VÍSIR AÐ GLÆSILEGUM TÆKIFÆRUM Hugboð tengjast skynjun- um sem eru að gerast eða munu gerast og sagan sýnir það að oftar en ekki ef hug- boðunum hefur verið fylgt eft- ir þá hefur verið hægt að koma bæði í veg fyrir óhöpp og tjón, auk þess sem hægt hefur verið að efla á þennan hátt mögulegar vinningslíkur fólks af ýmsum ástæðum. Hugboð hafa oftar en ekki gert okkur mannlegri og sátt- ari í sammannlegum sam- skiptum. Engum vafa er und- irorpið að varðandi tækifæri og möguleika þar sem áríð- andi hefur verið að vera fljót- ur að taka ákvarðanir hafa hugboð komið að góðum not- um. Við fáum nefnilega gjarn- an tilfinningu fyrir þvi að eitt- hvað gott liggi í loftinu ef við framkvæmdum þetta eða hitt. Mörg okkar fylgja góðum hugboðum eftir og ná glæsi- legum árangri af ólíkum toga. NÆMARI Á OKKAR NÁNUSTU Þegar við höfum lært að treysta hugboðum okkar aukum við líkur á því að okk- ur lánist að komast hjá vand- ræðum og hættum. Ekkert síður en að okkur auðnist frekar að nýta þau tækifæri og höndla sem við höfum í fyrstunni einungis óljóst hug- boð um að liggi í loftinu. Varðandi maka okkar og börn þá er enginn vafi á því að sambönd, sem byggjast upp á viðlíka tengslum, bjóða oftar en ekki upp á möguleika hugboða. Við er- um næmari á vanlíðan og vellíðan okkar nánustu en þeirra sem eru okkur óvið- komandi. DRAUMAR OG FJARSKYNJUN Við álítum mörg að hugboð okkar komi ekki einungis fram í missterkum tifinninga- skynjunum heldur og jafn- framt í formi drauma og fjar- skynjana. Við aðgreinum jafnvel ekki þessi skyldu en þó ólíku form hvers kyns hug- rænna skynjana. Það er þó Ijóst að þau hugboð, sem koma [ vöku, geta skipt sköp- um varðandi gæfu og gengi þess sem þau tengjast séu þau ígrunduð og af raunsæi og með íhugulli dómgreind. Það þýðir þó engan veginn að okkur auðnist endilega fyr- irfram að skilgreina það sem þau í raun innihalda og þýða. Hlustum því af athygli á þau sálrænu skilaboð sem eru innihald hugboða og látum ekkert tækifæri framhjá okkur fara til þess að nýta okkur þessa dulrænu reynslu sjálf- um okkur og öðrum til fram- dráttar og gæfu. Það er var- hugavert og beinlínis hættu- legt að nýta sér sálræna vitund til neikvæðra hluta. Góð hugboð geta reynst gulls ígildi. Wleð vinsemd, Jóna Rúna imim Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlítra af Aloe Vera þegar þú getur fengið tvöfalt meira magn af Aloe Vera geli frá Banana Boat á aðeins 1000kr.? Hvers vegna að bera á sig 2% af þráavarnarefnum þegar þú getur fengið 99,7% hreint Aloe Vera frá Banana Boat? Biddu um Banana Boat ef þú vilt 99,7% hreint Aloe Vera gel á 40-60% lægra verði. Það er alltaf ferskt (framleitt eftir pöntun), án spírulínu, án kemískra lyktar- efna eða annarra ertandi of- næmisvalda og fæst í 6 mismun andi túpu-, brúsa- og flöskustærðum. Þú fnnur engan mun á því að bera ferska, 99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat og hlaup úr Aloe Vera blaði beint á sár, bólgur eða útbrot. Prófaðu líka Banana Boat E-gelið á sölustöðum Banana Boat (fæst einnig í 3 stærðum hjá Samtökum psori- asis- og exemsjúklinga), hrukkuhindrandi og húðmýkjandi Banana Boat A-gel, baugaeyðandi og húðstyrkjandi Banana Boat kollagen gel, hraðgræðandi Banana Boat varasalvann með sólarvörn #21, græðandi, mýkjandi og rakagefandi Banana Boat Body Lotion með Aloe Vera, lanolíni, A-, B-, D- og E-vítamíni, húðnærandi og öldrunarhindrandi Banana Boat djúpsólbrúnkugel fyrir Ijósaböð, Banana Boat sólmarg- faldarann sem milljónfaldar sólar- Ijósið í skýjaveðri, Banana Boat sól- varnarkremið með hæsta sólvarnar- stuðulinn á markaðnum, #50, næringar- kremin Banana Boat Brún-Án-Sólar í 3 gerðum, Naturica BK Sólbrún-lnnan-Frá, Naturica hrukkubanann, alnáttúrlega svita- lyktareyðinn, kristalsteininn sem þú strýkur eftir blautum handarkrika þar sem kvikna engar lyktarbekteríur. Biddu um Banana Boat i apótokum, á sólba&sstofum, í snyrtivömverslunum, öllum heilsubúðum utan Reykjavikur og i Heilsuvali, Barónsstig 20,® 562 6275 4. TBL. 1996 VIKAN 59

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.