Vikan - 01.12.1996, Blaðsíða 70
LÍTTO VEL ÚT í JÓIAVEISLUNNI
Vilja ekki allir vera glæsilegir og
líta sem best út þegar allar þær
veislur, sem tilheyra jólunum, eru
annars vegar? Hér á eftir fylgja
nokkur góö ráö, bæöi fyrir þá, sem
vilja gefa sér góöan tíma til aö und-
irbúa sig fyrir veislu, en einnig fyrir
hina sem hafa nánast engan tíma
og fara gjarnan beint úr vinnu í
Byrjaöu daginn á góöu
þurrskrúbbi sem kemur blóö-
streyminu í húöinni vel af
staö og gefur þvi almenni-
legan og heitan litatón. Þeim
mun meira sem sést af húð
þinni þeim mun meira
skrúbb er æskilegt. Skrúbbiö
eyðir dauðu húðfrumunum
og kemur þannig á jafnvægi
sem gerir húöina líflegri og
fallegri. Leggðu sérstaka
áherslu á fætur og notaðu til
þess nuddhanska úr náttúru-
legum efnum (fíbrum).
Nuddhanskarnir eiga aö
vera mátulega harðir en þó
ekki þannig aö þeir særi eða
meiöi. Nuddið í litla hringi,
frá hægri til vinstri.
í stað þess að þurr-
skrúbba þig getur þú notað
vandaðan baðbursta og
milda en feita sápu. Með
þessu nuddar þú líkama
þinn léttilega. Þú getur einn-
ig notast við fljótandi sápu,
t.d. sjampó fyrir bæði líkama
og hár, og sem e.t.v. er með
sömu lykt og ilmvatnið þitt.
Það er gott að blanda ekki of
miklu saman af mismunandi
ilmum sjampós, svitalyktar-
eyðis og sápu. Jafnvel þótt
hvert fyrir sig ilmi vel getur
sambland af þeim komið
hræðilega út. Ef þú hefur
tíma er líka gott að þrífa sáp-
una af sér með því að skella
sér í 10-15 mínútna bað og
slappa vel af. Of heitt vatn
þreytir þig og gerir þig syfj-
aða þó að þér finnist það
gott. Fylltu því kerið af um
37-38 gráðu vatni.
Andlitsmaski gerir og
kraftaverk fyrir þreytta og
gráa húð. Hreinsaðu andlitið
með hreinsimjólk eða sápu
áður en þú notar maskann.
Settu síðan maskann á and-
litið, alveg niður á háls. Ætlir
þú í fleyginn kjól berðu þá
maskann á niður að brjóst-
um. Forðastu að bera hann
á nálægt augum. Gott er að
spyrja starfsfólk snyrtivöru-
verslana um góða maska því
oft er erfitt að velja á milli
þeirra. Spuröu um leir-