Vikan - 01.12.1996, Blaðsíða 69
okkur ekki í sannleikann um
hamingjuna. Viö erum sífellt
leitandi aö nýjum gildum og
fastapunkti í lífinu. Flíkin,
sem viö kaupum, þarf því
ekki einungis að líta vel út,
hún þarf helst aö gefa okkur
eitthvert lífsgildi. Hún gæti
t.d. minnt okkur á eitthvaö
sem veitir okkur gleði og gert
þaö aö verkum aö okkur
fyndist við vera hamingju-
samari þegar viö klæðumst
flíkinni.
Á kostnað tæknilegra
gæöa sem einkenni vörunn-
ar, ræður ímynd flíkurinnar
meir og meir ríkjum með sér-
kennum sínum og frumleika.
Neytandinn blandar síðan
hinum ýmsu fötum saman
og býr þannig til sinn pers-
ónulega stíl. Tískuhönnuðir
verða að skapa sér ímynd
sem réttlætir þann verömis-
mun sem neytandinn borgar
aukalega fyrir vöru þeirra.
Hér spilar markaðsfræðin
stóran þátt, þ.e. hvernig var-
an er kynnt og hvaöa tæki-
færi bjóöast til að klæðast
flíkinni. Gæöi vörunnar eru
og verða enn nauðsynleg,
en þau eru þó ekki nægjan-
leg ein og sér til þess að
Framandi þjóölönd eru upp-
spretta hönnunar Romeo
Gigli en föt hans þykja of
þjóóbúningaleg og njóta ekki
eins mikilla vinsælda og áö-
ur.
markaðssetning nái að
skera sig úr og vekja athygli
neytenda. Með því persónu-
lega hönnunarferli sem mun
myndast verður framleiðslan
að vera sveigjanleg og hröð.
í ókominni framtíð gæti jafn-
vel farið svo að fötin verði
hönnuð eftir að þau hafa
verið seld, sem hefur reynd-
ar þegar orðið á öðrum svið-
um iðnaðar.
í október var vor- og sum-
Versace er umdeildur hjá femínistum vegna þeirrar glansímyndar sem hann gefur af konum.
-,--W
. Jt
artískan 1997 kynnt en tísku-
sýningafyrirkomulagið, sem
byggist á tveimur sýningum
á ári, er enn í föstum skorð-
um hjá stærstu tískuhönnuð-
unum. Ýmislegt bendir þó til
að núverandi tískusýninga-
form eigi eftir að breytast og
margir telja það jafnvel nú
þegar vera orðið úrelt. Fróð-
legt verður að fylgjast með
ungum og nýjum tískuhönn-
uðum í framtíðinni því þeir
verða væntanlega að finna
sér aðra leið að markaðnum
en þeir eldri hafa farið hing-
að til. □
Moschino hefur ávallt gert grín aö tisk-
unni og hér setur hann sig á stali Holly-
woodkvikmyndanna meö gallafatnaói
sfnum.
4. TBL. 1996 VIKAN 69