Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 9
**<
ekki hver þetta var?” spyr
Christian. „Þetta var tísku-
kóngurinn Giorgio Armani í
fylgd tveggja lífvarða.” Sem-
sagt: við sáurn næstum því
Armani sjálfan. Það munaði
ekkí miklu, en það sem
skiptir kannski meira máli er
að hann sá íslenskar kvenna-
kórskonur!
STJÓRNAR 70 KONUM!
Æfingunni um kvöldið er
aflýst en ákveðið að hafa
raddæfingu fyrir alt-raddir.
Konurnar eru úrvinda eftir
ferðina til Flórens og hitinn
er mikill. Margrét bendir
þeim á að sofa vel um nótt-
ina, því nú séu aðeins tveir
æfingadagar eftir fram að
messunni og tónleikunum. A
föstudagskvöldið sækjum við
tónleika Kvennakórs Hafn-
arfjarðar í Hertogahöllinni í
Massa. Umhverfið er ótrú-
legt og þær eru glæsilegar,
Hafnarfjarðarkonurnar, í
rauðu og hvítu kyrtlunum
sínum: „Þetta er mjög þrosk-
andi fyrir konurnar,” segir
Guðjón Halldór Óskarsson,
organisti og stjórnandi
Kvennakórs Hafnarfjarðar.
„Þetta er fyrsti kvennakór-
inn sem ég fer með í tón-
leikaferð og óneitanlega
finnst mér skemmtilegt að fá
að stjórna næstum 70 konum
hér! Slíkt tækifæri fá ekki
allir karlmenn!”
„Það er ekki bara gaman
að sjá Ítalíu, heldur er félags-
skapurinn líka góður og það
er gott fyrir fólk að kynnast
því aðhaldi sem fylgir því að
vera í kór, “ segir Margrét
Óskarsdóttir, sem starfar í
heildverslun. Yngsti kór-
félaginn í Kvennakór Hafn-
arfjarðar er Hulda Bára Ey-
steinsdóttir, 17 ára, og hún
segist eiga margar mömmur í
hópnum: „Það er passað vel
upp á mig!” segir hún. „Eg
hafði áður sungið í skólakór-
um, en þegar námi lýkur er
ekki um svo margt að velja.
Ég er ánægð með að hafa
valið Kvennakór Hafnar-
fjarðar og það skiptir okkur
máli að fá tækifæri til að
syngja hér á Ítalíu; það er
alltaf gott að koma sér á
framfæri.”
KYNSLÓÐABIL
EKKI TIL
Laugardagur rennur upp. í
dag er lagt blátt bann við
áfengisneyslu af nokkru tagi. Stíf-
ar æfingar taka við hjá Gospel-
systrum, fyrsti hópurinn mætir
klukkan níu á æfingu. Áfram
er haldið fram á kvöld með
stuttu matarhléi á bflastæð-
inu við húsið sem Margrét
Pálmadóttir leigir íbúð í.
Hún kaupir pizzur handa
hópnum og býður upp á
melónu og vatn: „Það er gott
fyrir konurnar að losa sig við
allt stress að heiman, geta
gleymt sér í því að æfa, læra
texta og stefna að tónleik-
um,” segir hún.
Sumar hafa setið með
textabækurnar sínar úti á
svölum fram eftir nóttu. Þær
segjast hvorki þora né vilja
bregðast stjórnandanum:
„Margrét Pálmadóttir opn-
aði nýjan heim á íslandi,”
segir Anna Tryggvadóttir, 63
ára hótelrekandi í Reykja-
vík. „Þegar ég flutti frá
Bandaríkjunum eftir 34 ára
dvöl sá ég Island í nýju ljósi.
í gegnum Margréti hef ég
kynnst skemmtilegum kon-
um sem ég hefði sjálfsagt
aldrei haft tækifæri til að
kynnast á ævinni.” I sama
streng tekur Selma Hannes-
dóttir, ein Gospelsystra, 65
ára: „Þetta er heimur út af
fyrir sig,” segir hún. „Hér er
kynslóðabil ekki til.”
Svanfríður Gísladóttir
þroskaþjálfi segist hafa geng-
ið í gegnum erfiðleika í lífinu
en fundið hamingjuna aftur í
gegnum sönginn: „Það hefur
gefið mér svo mikinn sálar-
styrk að kynnast og vinna
með Margréti að ég væri
ekki það sem ég er í dag án
Æft í miklum hita! Kvennakór Hafn'
arfjarðar æfði úti í garði og Mar-
grét Pálmadóttir kenndi sínum
konum réttu hreyfingarnar.
Margt var sér til gamans gert í _
ferðinni. Hér les einsöngvarinn Ólöf
de Bont Ólafsdóttir í lófa.
hennar. Hún kennir okkur
ekki aðeins að syngja heldur
kennir hún okkur líka hvað
lífsgildið er mikils virði.”
Sú yngsta í Gospelsystrum
er Ástrós Elísdóttir, 16 ára.
Hún syngur líka í Stúlkna-
kórnum og segist hafa lært
mikið af dvölinni á Ítalíu:
„Það er frábært að fá tæki-
færi til að æfa daglega,” segir
hún og þegar hún er spurð
um Margréti er ekkert hik:
„Belissimo senjorina! - Hún
er frábær manneskja og frá-
bær kórstjórnandi.”
ÍSLENSKAR RADDIR í
KAÞÓLSKRI MESSU
Þrír kaþólskir prestar í full-
um skrúða ganga inn að alt-
arinu, sveiflandi reykelsi.
Blómin sem prýða altarið
skipta hundruðum. En það
er ekki fegurðin innandyra