Vikan - 23.07.1998, Qupperneq 51
aði á að selja ritföng og
pappír en færði fljótlega út
kvíarnar og bætti skartgrip-
um við vöruúrvalið. 1850 var
útibúið fræga, sem Audrey
heimsótti um morgunverðar-
tíma, opnað í París. Sonur
Charles Louis Comfort kaus
að fara aðrar leiðir en hann
var listmálari. Árið 1875
byrjaði hann tilraunir með
að vinna nytjahluti úr gleri
og hóf rekstur eigin gler-
verksmiðju þremur árum
síðar. Þar voru framleiddir
hinir frægu Tiffany's lampar
og skálar sem njóta mikilla
vinsælda í dag og seljast eins
og heitar lummur í
antíkverslunum í Reykjavík.
Verslanir, sem verða til
vegna verka eins hönnuðar,
selja líka og enn þann dag í
dag vörur merktar stofnand-
anum þótt aðrir hönnuðir
hafi fyrir löngu tekið við.
Dorothy Perkins er ein
slíkra. Laura Ashley er önn-
ur og búðir sem selja vöru-
merki þeirra hafa sprottið
upp út um allan heim.
Body Shop byggir á ákveð-
inni hugmyndafræði um um-
hverfis- og dýravernd en sér-
hannaðar umbúðir og yfir-
bragð allra verslananna gera
þær auðþekkjanlegar. Anne
stofnaði og veitir verslunar-
keðjunni enn forstöðu þótt
sérstakir umboðsmenn fari
með reksturinn í hverju
landi fyrir sig.
í flestum stórborgum úti í
heimi eru verslunargötur
sem algjör nauðsyn er að
ganga eftir. Oftast nær hefur
hefðin skapað þeim sess.
Byggð hefur hafist við
ákveðinn kjarna og síðan
þanist út frá honum en
kjarninn áfram hýst stærstu
og elstu verslanirnar. Ox-
fordstræti, Princes Street og
Fifth Avenue eru götuheiti
sem nánast hvert mannsbarn
kannast við.
Ef stunda á menningarlegt
búðaráp af einhverri alvöru
hér á Islandi er miðbærinn
staðurinn. Upphaf verslunar
í Reykjavík var við Strand-
götu sem seinna var nefnd
Hafnarstræti. Síðar tók
Austurstræti, eða Langa-
stétt, við hlutverki aðalversl-
unargötunnar. Laugavegur-
inn var upphaflega hugsaður
sem aðalgatan út úr bænum
og til að auðvelda fólki leið-
ina að Þvottalaugunum í
Laugardal en fljótlega fóru
húsin við götuna að rísa og
þá jafnframt verslanir að
spretta upp. Laugavegur 1
var byggður árið 1848 og
hefur verslunin Vísir verið
þar til húsa síðan.
Hattabúð Reykjavíkur og
Hattabúðin Hadda eru nán-
ast leiðarmerki í borginni,
jafnlengi og þær hafa starf-
að. Hattabúðin
Hadda var stofnuð
árið 1928 af Halldóru
Pétursdóttur og var
fyrst til húsa að Skóla-
vörðustíg 2. I árdaga
búðarinnar var hatta-
saumur blómleg iðn-
grein og voru reknar
átta hattabúðir í
Reykjavík. Tengdar
þeim öllum voru
saumastofur og þar
höfðu íslenskar hatta-
gerðarkonur vinnu.
Hattasaumur var
kenndur við Iðnskól-
ann og nýjasta hattat-
ískan var sótt til
London og Parísar
einu sinni á ári. Þá
þótti kona varla
klædd almennilega
nema hún væri búin
að setja upp hatt og
enginn mætti til jarð-
arfarar án þess að
hafa höfuðfat.
í Veltusundi 3 er
úraverslun Hermanns
Jónssonar en úrsmið-
ur hefur verið til húsa
í þessu verslunarplássi
allt frá 1887 að Magn-
ús Benjamínsson
stofnaði verslunina og
byggði húsið.
íslenskir úra- og F ,
gullsmiðir reka gjarn- k)æða
an verslanir sínar undir eigin
nafni. Gullsmíðaverslun
Jóns Sigmundssonar var t.d.
stofnuð 1930, Jón og Óskar,
Frank Michaelsen og ótal
fleiri dýrgripaverslanir er að
finna á Laugaveginum. Sum-
ar þessara verslana eru fjöl-
skyldufyrirtæki og önnur
kynslóð að taka við. Dver-
hagir listamenn, Hjálmar
Torfason og sonur hans
Torfi, reka orðið saman gull-
smíðaverkstæði sem Hjálm-
ar stofnaði. Annað stórt fjöl-
skyldufyrirtæki við Lauga-
veginn er Hans Petersen sem
er stórveldi í íslensku við-
skiptalífi.
Annars einkennir Lauga-
veginn öðru fremur fjöl-
breytnin. Verslanir og veit-
ingastaðir koma og fara. Að
henda reiður á breytingum
og vöruvali hlýtur að vera
mikil vinna. Oft hefur verið
dáðst að því hversu mikið og
vel íslendingar nostra við
heimili sín. Þegar mynduð
eru híbýli sumra kemur
stöðugt á óvart hversu margt
fallegra rnuna er þar að finna
og oft óskiljanlegt að hægt
hafi verið að safna saman
svo mörgum sérstökum hlut-
um á ekki lengri tíma en sem
nemur hluta úr mannsævi.
Almennur áhugi á búðarápi
og góð ástundun þeirrar
tómstundaiðju er sennilega
hluti af skýringunni.
Kringluna er að verða eins og kirkjuferðir voru
sig upp og koma tii að sýna sig og sjá aðra.
gamla daga. Menn
51