Vikan


Vikan - 22.06.1999, Síða 6

Vikan - 22.06.1999, Síða 6
Texti og mynd: Kristján Frímann Ljósm.: Gísli Egill Hrafnsson f e I I arna hvílir hann handan við hafið, óræður og munúðar- fullur líkt og hofmey í skála fornkappa sem bíður vitjun- ar. Línurnar eru ávalar en þéttar og hvelfdur barmur- inn rís og hnígur í takt við veðrabrigði. Hin hvíta brá jökulsins minnir þó meira á mjallahvíta húð japanskrar geisju en veðurbarinn vík- ing, enda er jökullinn ekki allur þar sem hann er séður. Eitt sinn hét hann Snjófell en varð Snæfell og var kenndur við Snæfellsásinn, vætt þann er víkingar töldu að gætti nessins. Hinir fyrstu landnámsmenn fylltust lotn- ingu er þeir litu þetta ris- mikla fell og sannfærðust um að þar byggi einn vold- ugasti landvættur íslands. Norsku landnámsmennirnir trúðu allir á landvætti frá fornu fari og sú trú átti sér djúpar rætur. Þeir leituðu því til Snæfellsássins í öng- um sínum um liðveislu ef út af brá og fóru eigi bónleiðir til búðar. Hjálp hans brást ekki og því sannfærðust fornmenn enn frekar um mikilleik ássins. En til að skilja þennan vætt og eiga greiðari aðgang að honum, breyttu frumbyggjar lands- ins þessum ósýnilega kon- ungi í lifandi veru, holdi klædda. Þann heiður hlaut Bárður, sonur Dumbs þess er Dumbshaf er kennt við og var hann af risum kom- inn. Móðir Bárðar var Mjöll dóttir Snæs af Kvenlandi, og þótti kvenna fríðust, snæhvít á hörund með silkimjúkt þel. Bárður, sem var risi að vexti, þótti furðulíkur móð- ur sinni í útliti og karlmönn- um fegri en skapbráður mjög líkt og faðirinn. Sögnin um Bárð Snæfellsás minnir sterklega á lýsingar Snorra Sturlusonar á Óðni alföður en sú lýsing minnir aftur á hinn gríska Seif og aðrar miklar verur fortíðar er námu land á jörð. Snæfellsjökull á sér marga leyndardóma. Af þeim er fræg saga franska rithöfund- arins Jules Verne um leynda hella, leynigöng, fjársjóði og furður í iðrum jökulsins. Sú saga sýnist bein skírskotun til sögunnar um Bárð Snæ- fellsás og því má ætla að kynni Vernes af Bárði hafi verið allnáin. Jafnvel er ekki loku fyrir það skotið að sjálfur hafi Verne kynnst Englendingi þeim er ku hafa opnað leyndardóminn á síð- ustu öld og sagt er frá í bók Árna Óla, Undir Jökli: "Engir nema trúnaðar- menn Bárðar vissu hvar hellir hans var, og liðu svo aldir að þangað komu engir óboðnir. En sögn er, að á öldinni sem leið hafi enskur maður komizt í hellinn með tilstyrk kotbónda á norðan- verðu nesinu. Bóndi þessi var nefndur Grímur og var talinn fjölkunnugur. Hellir- inn var í björgum nokkrum efst í jöklinum og var bjart þar inni. Var þar fagurt um að litast, því að þar héngu uppi glitofin tjöld og skraut- legar kápur og margar ger- semar aðrar. Þarna lá Bárð- ur og svaf og vaknaði ekki við komu gestanna. Kista mikil stóð þar á gólfi og lyk- ill í, en ekki gátu þeir snúið lyklinum fyrr en sá enski fann upp á því að taka klakastaf Bárðar, stinga honum í lykilaugað og nota sem vogarstöng. Hrökk þá kistan opin, en við það vaknaði Bárður og færðist á fætur. Leizt þeim þá ekki 6 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.