Vikan


Vikan - 22.06.1999, Side 14

Vikan - 22.06.1999, Side 14
Texti: Hrund Hauksdóttir Myndir: Björn Blöndal Magnþrungin myndlistarkona á Snæfellsnesi Bjarnarfoss á hinu seiðmagnaða Snæfellsnesi er heimili Sigríðar Gísladóttur myndlistarkonu og barna hennar. Þar býr fjölskyldan í vinalegu og heillandi húsi fjarri skarkala höfuðborgarinnar. Þannig líður þeim best; í faðmi náttúrunnar og umkringd friðsældinni. ikan heyrði því fleygt að Sigríður væri rammgöldrótt og okkur lék hugur á að spjalla við hana. Erindið er kurteislega borið upp: Ertu göldrótt, Sigríður? Elún hlær stríðnislega: „Þetta eru nú aðallega gamlar sögusagnir sem komist hafa á kreik um mig. Ég held þær hafi orðið til sökum þess að fólki finnst ég eitthvað nornarleg í útliti. Ég er á þeirri skoðun að við konur séum allar nornir og rammgöldróttar en við erum misklókar í að virkja bæði góð og ill öfl, þegar svo ber undir. Fólk tengir líka Snæ- fellsnesið gjarnan við dular- fulla orku, enda er það ákaf- lega kraftmikill staður. Hér er svo mikil víðátta. Fjöllin og magnþrungið hafið hafa vissulega mikil áhrif og Snæ- fellsjökull toppar þetta að sjálfsögðu. Það er bullandi kraftur hér." Svona magnað umhverfi hlýtur að vera draumaum- hverfi myndlistarmannsins og Sigríður efast ekki um að Lisfiikonan i iiotnlcgu eldlnisi sínii n Itjiini- nrfossi. Kjóliiin linnii- aói liiin og sniniinAi sjúH'. Iliin segir nii „víkingnlilingiir" hali ráAift lerAiuni viA liiinniininn. [J jf't j|jí« s f -"iA svo sé: „ Ég útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskólans árið 1993, fór síðan í nám til Noregs sem gestanemi og hef sótt ýmis námskeið í myndlist. Að öðru leyti hef ég búið samfleytt á Snæfellsnesinu í 19 ár og get ekki hugsað mér dá- samlegri stað til að sinna mynd- listinni og barna- uppeldinu. Auð- vitað getur stundum verið þrælerfitt að búa hér en ég er þannig gerð að ég læt aldrei deigan síga. Ég er að þrjóskast við að hafa myndlistina að aðalstarfi en auk þess fer töluverður tími í barnauppeldi og heimilis- hald. Ég held stundum nám- skeið í málun og hef haldið þau ýmist hér heima á Bjarnarfossi, í Ólafsvík eða í Borgarnesi. Svo er ég með kennslu í myndmennt í Lýsuhólsskóla. Ég nota náttúruna mikið til innblásturs þegar ég mála. Það eru þó einkum orkan og litirnir sem ég sæki til hennar. Ég var t.d. mun litaglaðari áður fyrr, en um þessar mundir mála ég mik- ið í bláum tónum og held að þá stefnu mína megi rekja til fjallanna hér. Þetta er draumastaður fyrir mig og mína listgrein þar sem ég hef hafið öðrum megin við húsið og fossinn hinum meg- in! Það er unaðslegt að heyra niðinn í fossinum þeg- ar ég er að munda penslana. Húsið mitt gat því ekki fengið annað nafn en Bjarnarfoss. Aðstoð að handan? Myndirnar þínar eru af dul- arfullum og greinilega sterk- um konum. Manni dettur helst í hug að þær séu málaðar með aðstoð að handan? Sigríður verður hugsi um stund en segir svo: „Þetta hefur verið sagt nokkuð oft við mig og þegar ég hef haldið málverkasýningar hefur það gerst nokkrum sinnum að skyggnt fólk hef- ur haft orð á þessu. Ég get ekki staðfest neitt um þau mál. Hins vegar get ég sagt þér að ég hef einbeitt mér að því að mála konur. Ég vil gera sannar myndir af okkur konum eins og við erum; sterkar og fullar sjálfs- trausts. Ég leitast við að hafa myndir mínar táknræn- ar fyrir sjálfsbjargarviðleitni kvenna því við erum svo Konur þurfa að not- færa sér krafta sína, hörku og, já, galdra, í mun meiri mæli en þær gera. Ég er á þeirri skoðun að við konur séum allar nornir og ramm- göldróttar en við erum mis- klókar í að virkja bæði góð og vond öfl, þegar svo ber undir.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.