Vikan - 22.06.1999, Page 46
Framhaldssagan
seinna stóð með sólgul eld-
húsgluggatjöld í höndunum.
Rae fórnaði höndum.
Gefðu mér smá tíma!
Ertu viss um að þú þurfir
ekki aðstoð?
Alveg viss.
Get ég gert eitthvað ann-
að fyrir þig? Hann lyfti
gardínunum. Bara svona í
Hann hristi höfuðið.
Hún benti. Gardínustang-
irnar eru þarna. Þú hlýtur að
geta valið eina hjálparlaust.
Vá hvað þær eru flottar.
Ég er hreykin af þér Rusty.
Carol leit hrifin á glugga-
tjöldin sem Rusty var að
hengja fyrir gluggann.
Ég heyri ekki betur en
það komi þér á
óvart, sagði hann
móðgaður.
Finnst þér það
skrýtið? Þú ert nú
ekki þekktur fyrir
góðan smekk.
Ég þakka. Hann
opnaði skúffu, tók
upp gulan dúk og lagði hann
á eldhúsborðið. Segðu svo
að ég hafi ekki góðan
smekk!
Carol hló. Vel á minnst, ég
er með tvenn skilaboð til
þín. Elaine hringdi. Ég sagði
henni að ég hefði ekki hug-
mynd um hvenær þú kæmir
heim.
Gott hjá þér. Og hin skila-
boðin?
Þau eru frá Genu. Þau
Mac eru með boð í kvöld og
langar til að þú komir. Það
byrjar um áttaleytið.
Ég sé til hvort ég næ því.
Ætlar þú að vera heima í
kvöld?
Ég ætla að fara með
Fanný heim til Gary. Allur
bekkurinn er boðinn þangað
í partí.
Eru foreldrar hans heima?
Carol stundi hátt. Hvað er
eiginlega að þér? Ef þau
væru heima værum við ekki
að fara þangað.
Gott og vel. En lofaðu að
láta bjórinn eiga sig.
Hafðu ekki áhyggjur. Mér
þykir hann vondur.
Þú vilt frekar léttvín?
Hvernig veistu það?
spurði hún hissa.
þakklætisskyni.
Hún hrukkaði ennið. Það
er satt að segja svolítið...
Út með það.
Ég hringdi í Söru frænku
til þess að komast að því
hvar Bobby heldur sig en
hún hefur enga hugmynd
um hvar hann er. Hann er
reyndar ekki í daglegu sam-
bandi við mömmu sína, en
hún er áhyggjufull vegna
þess að hún hefur árangurs-
laust reynt að ná sambandi
við hann.
Kannski hann hafi farið til
Connecticut. Hann minntist
eitthvað á konu sem býr þar.
Kannski, sagði hún hugsi.
Það er bara svo ólíkt honum
að hverfa svona án þess að
láta nokkurn vita.
Ég held að þetta sé nú
bara stormur í vatnsglasi en
ég skal spyrjast fyrir og
reyna að komast að því
hvort einhver hefur séð til
hans eða heyrt í honum.
Það væri gott. Hringdu í
mig ef þú fréttir eitthvað. Ég
er búin að láta tengja sím-
ann.
Um leið og hún kvaddi
spurði hún: Áttu gardínu-
stöng?
Stóri bróðir veit allt, sagði
hann stríðnislega. Haltu þig
frá öllu sem heitir áfengi og
komdu heim í síðasta lagi
klukkan eitt. Þú mátt
hringja í mig ef þig vantar
far. Ef ég er ekki hér þá er
ég hjá Genu og Mac.
Þú ættir að fara í boðið,
sagði Carol ákveðin. Þú ert
alveg hættur að skemmta
þér. Þú bara vinnur og vinn-
ur. Hún brosti stríðnislega.
Nokkrar stelpurnar í bekkn-
um mínum eru skotnar í þér.
Þeim finnst þú svo flott vax-
inn. Ef þú hefur áhuga..
Hún skellti upp úr þegar
hún sá svipinn á andliti hans
og flýtti sér út um dyrnar.
Mac opnaði þegar Rusty
hringdi dyrabjöllunni. Hann
brosti út undir eyru þegar
hann sá hver var kominn.
Við vorum farin að halda að
þú hafir ákveðið að gerast
einsetumaður eða eitthvað
svoleiðis, sagði hann. Ég er
feginn að þú komst.
Hvað er að frétta? Hvern-
ig líður Genu?
Hún hefur varla gert ann-
að en að versla síðan hún
varð ófrísk. Barnaherbergið
er að verða eins og útstill-
ingargluggi!
Rusty hló og fór inn í
stofu. Er Bobby hérna?
Nei, því miður. Gena var
að reyna að hafa uppi á hon-
um en tókst ekki.
Það voru a.m.k. 25 gestir í
stofunni. Rusty gat ekki
varist brosi þegar hann
heyrði tröllahlátur. Eins og
venjulega heyrði maður í
Sam Regis áður en maður
kom auga á hann.
Sæll Sam, sagði hann
hressilega. Ég hef vinnu
handa þér ef þú hefur
áhuga.
Ertu að grínast? Á þess-
um síðustu og verstu tímum
hef ég alltaf áhuga. Hvar?
Hjá konu sem er nýflutt í
Valley Road númer sautján.
Þú manst kannski hvar það
er, þar bjó einu sinni stelpa
sem var með okkur í bekk.
Sam hristi höfuðið. Ég
man ekki eftir henni.
Hvernig leit hún út?
Hæ strákar! Hvaða
stelpa?
Sæl Elaine, sagði Sam.
Hvað segirðu?
Svo sem allt gott nema
það að Rusty svarar aldrei
skilaboðum frá mér. Hún
sveiflaði daðurslega ljósu
hárinu.
Hvaða stelpa? endurtók
hún.
Rósalía, sagði Rusty. Ég
man ekki eftirnafnið hennar
en ég man að okkur var öll-
um boðið í veislu þangað
fyrir nokkrum árum.
Ég man eftir henni, sagði
Elaine. Aumingja stelpan,
hún var ömurleg. Bæði feit
og ljót. Af hverju eruð þið
að tala um hana?
Ég er að fara að vinna í
húsinu þar sem hún bjó.
Hefur þú nokkuð rekist á
Bobby nýlega?
Nei, hvers vegna spyrðu?
Ég bara spurði. Hann
forðaði sér og gekk til Mac
sem brosti afsakandi. Ég
veit að þú þolir hana ekki en
Gena sagði að við gætum
ekki verið þekkt fyrir annað
en að bjóða henni.
Það er allt í lagi mín
vegna. Rustý horfði á Genu
sem var á leið í eldhúsið. Ég
skal veðja að þetta eru
a.m.k. tvíburar, sagði hann.
Mac hryllti við. Við höfum
ekki efni á því!
Rustý! hrópaði Gena
gegnum hávaðann í stof-
unni. Það er síminn til þín.
Hann leit á klukkuna. Hún
var ekki orðin tólf.
46 Vikan