Vikan - 12.07.1973, Qupperneq 25
]
— Þú kannast ekkert viö hana,
pabbi, sagði Rory og nú var hann
orðinn verulega skelkaður. — Það
er heldur ekki oröið opinbert. Ég
hefi — hefi verið að gæla viö þá
hugsun. Claudia er nú ekki nema
sextán ára, það er varla timabært
fyrir hana að giftast.
— Rétt er það, þið þurfiö að
minnsta kosti ár, til að hugsa um
þetta, en á meðan vil ég ekki að
þú hittir þessa Bostonstúlku,
nema hún sé reiðubúin til að eiga
vingott við þig án hjúskapar.
Brosið á andliti Josephs var ekki
geðfellt.
Rory §agði: — Ég á llka eftir að
ljúka laganáminu.
— Hver segir að þú eigir ekki
að gera það. Þvert á móti, ég
krefst þess. En þegar þvi er lokið
getur brúökaupið fariö fram.
Joseph sló I borðið. — Þetta er þá
ákveðið. Þú verður að viðurkenna
að þetta er mjög hagstætt hjóna-
band og stúlkan er greinilega
mjög ástfangin af þér, þó ég skilji
nú ekki hversvegna hún er það.
Rory tókst að lokum að kreista
fram bros, þvi að það var ljóst að
faðir hans ætlaðist til þess. —
Leyfðu mér aðeins að ljúka nám-
inu, hugsaði Rory, þá get ég gefið
dauðann og djöfulinn i allar
hjúskaparáætlanir þinar og ég
get búið I friði með Maggie.
— Ég skal komast að sannleik-
anum I þessu máli, hugsaði
Joseph, ég læt Charles snúa sér
að þvi strax. Það er eins gott aö
kyrkja svona grillur I fæðingunni.
Að kvöldi 15. febrúar, var
orrustuskipiö Maine sprengt i
loft upp i höfninni i Havana. Eng-
inn vissi hvað hafði orsakað
sprenginguna, en hún var samt
nóg ástæða til þess, að striðs-
mangarar um öll rikin kröfðust
þess að striö yrði hafiö.
Enginn vissi með vissu hver
„óvinurinn” var, en eftir tölu-
verða umhugsun var ákveöiö að
það væru Spánverjar. Fyrsta mai
öslaði George Dewey, yfirsjóliðs-
foringi, á skipi sinu, inn á höfnina
i Manila og sökkti öllum spánska
flotanum sem þar var, átta þús-
und mflum i burtu.
Spænska stjórnin I Madrid leit-
aöist.eftir skilmálum fyrir upp-
gjöf og vopnahlé var undirritaö i
Parts tólfta ágúst.
Rory Armagh hafði misst áhug-
ann á þessu, löngu áður en friðar-
sáttmálinn var undirritaöur i
Paris, þvi að Kevin bróðir hans
hafði fallið i þessarri „stórkost-
legu smáorrustu”, um borð i
ameriska orrustuskipinu Texas.
Þegar Kevin haföi fengið vor-
leyfi i skólanum, kom hann að
máli viö bróður sinn og sagði: —
Ég ætla ekki aö fara til Green
Hills i sumarleyfinu, ég er búinn
aö fá stöðu sem blaöamaður hjá
Framhald á bls. 46
28. TBL. VIKAN 25