Vikan

Tölublað

Vikan - 12.07.1973, Blaðsíða 28

Vikan - 12.07.1973, Blaðsíða 28
ÍSRAEL Bedúínakona frá Sínaí. AAeðlimur Fílharmóníu hl jómsveitarinnar. Stormurinn hvin i hiröingja- tjaldinu á auðninni, leikur um appelsinutrjálundina og feykir loks Ijósu hári Daliah Lavi svo hún sýnist enn yndislegri en ella. tsraelska kvikmyndastjarnan stendur fyrir framan kvikmynda- tökuvélar þýzka sjónvarpsins og syngur i tilefni 25 ára afmælis tsraelsrikis. Hún útskýrir jafnframt mynd- irnar sem á eftir koma. Hún segir frá þvi, þegar læknar, lögfræð- ingar og leikmenn fluttust út á eyöimörkina og gerðu hana frjó- sama. Aður en þeir komu varþar ekki annar gróður en fáein ólifu- tré á stangli, sem voru gróöursett löngu fyrir daga Krists. Hún segir frá erfiöu en hamingjusömu lifinu á Israelsku samyrkjubúunum. Hún syngur þjóðlög við nýja bar- áttutexta. Þessi nýju ljóö eru samin af Gyðingum. Þau eru full viðkvæmni og túlka jafnframt Kúrdískur Gyðingur. Eftirlitsmaður við Súezskurðinn. Gyðingur frá Jemen. ótrúlegt þrek þjóðarinnar. I gegn um þetta allt skin þokki Gyöingastúlkunnar, sem er klædd þröngri blússu og ber vélbyssu. Israel I aldarfjórðung. Þaö er ævintýri ltkast. Þetta segja áróöurssérfræöingar tsraels- stjórnar, en þeir geta ekki um hvernig þeir virkjuðu zionistiska fasismann til þess að hrinda af stað tveimur styrjöldum. Þeir Dóttir þýzks innflytjanda. Frómur innflytjandi frá Þýzkalandi. álitu nauðsynlegt að leggja undir sig stærra landssvæði og þjaka og pina ibúana til þess aö tsraels- þjóðin hefði skilyrði-til að þrifast. En gestur I Palestinu kemst ekki hjá þvl að verða þessa áróðurs var. Hleypidómarnir blasa hvar- vetna viö. Og þaö er erfitt aö feta sig áfram að rökréttri niðurstöðu eftir vandfundnum meðalvegi, þar sem skainmt er öfganna milli. Andstæðurnar I ísrael virðast ósamrýmanlegar. Gershom Scholem, sérfræðingur i zionistiskri dulspeki, segir það algjöra fjarstæöu að þekkingu Gyðinga á eigin sögu og trúar- brögöum hafi farið aftur. Israelitar eiga lika erfitt meö að skýra eigið samfélag án þess aö styðjast við dulspeki. tsraelski blaðamaðurinn Uri Dan segir: „Þetta er hálfbrjálað land, það geggjaöasta á jarðkringlunni.’' Máfi sinu til sönnunar bendir hann á syðsta odda Sinaiskagans, endamörk hernumda svæöisins frá 1967. Leiöin þangað liggur yfir mörg hundruö kllómetra langar eyðimerkur, eitt fallegasta lands- lag jarðarinnar. Þegar Scharm el- Scheich er að baki, taka enn við eyðimerkur. En á sandölunum við Rauðahafið er Daviðsstjörnunni flaggað. Undan ströncfinni liggur skip úr Isra- elska flotanum. A skipinu er Fllharmónluhljómsveit Israels, ein sú bezta I heimi. Með vindinum berast tónar úr Aidu eftir Verdi og sjóliöarnir baöa sig I sjónum og grlpa nótnablöðin, sem fjúka út fyrir borðstokkinn. Jigal Allon varaforsætisráöherra og Abdullah, höföingi höföingj- anna á Slnai, klappa hljóm- sveitinni lof I lófa. Þessi skrlpaleikur á að vera táknrænn fyrir menningarleg yfirráð Gyðlnga á eyðimörkinni. Tónlistarmennirnir rabba saman á móðurmálum slnum, þýzku, ensku, rússnesku og pólsku á meðan Allon heldur ræöu. Hann er berfættur I sandölunum og með skyrtuna flakandi frá sér. Hann talar fjálglega um sögulegt og merkilegt gildi atburðarins. Hljómsveitin leikur aftur. Hér hefur Sinfóntuhljómsveit tsraels ’ verið. Suður-Sinai sem með réttu tilheyrir Egyptalandi er aftur orðið að gyðinglegu menningar- landi. Siðan Móse fór hér um eru liöin 3200 ár. A undan menningunni komu skemmtiferöalangar til Scharm el-Scheich. Þeirfyrstu komu með ibúðarvagna með sér. En egypzki eyðimerkursandurinn var ekki lengi aö riöa hjólum israelsku vagnanna að fullu. Bygging viðarhúsa var hafin og lúxushótel úr steinsteypu risu á eyöi- mörkinni. Gjaldið, sem ferða- fólkið greíðir fyrir að dvelja þarna, nægir varla fyrir vatninu sem þaö notar. En fjárútlát stjórnarinnar til þessara mála hafa ákveðinn tilgang. Úr þvi aö tsraelsstjórn innlimar arabiskt land opinberlega ætlar hún að láta Gyðinga búa þar. Það gerist smám saman, án þess að mikiö beri á. Þaö hefur þegar gerzt I Jórdandalnum, Hebron og 1 Betlehem og nú er röðin komin að Sinaieyðimörkinni. Aðferðin er sú sama og fyrstu innflytjendurnir i Tel Aviv beittu. Þessi vlkkun rikisins er ekki fyrirfram skipulögð. Rlkis- stjórnin I Jerúsalem gæti ekki komiþ sér saman uni landamæri rikisins, jafnvel þótt hún væri öll af vilja gerð. Enginn I stjórninni hefur fastmótaðar hugmyndir uih þau nema Jigal Allon og hann á sér sterkan andstæðing þar sem Moshe Dayan er. Skoðun Allons á stærð rlkisins er bezt lýst meö oröum hans sjálfs: „Aðeins það landrými, sem hernaðarlega er ( óhjákvæmilega nauðsynlegt.” Svæöiö sem Allon á við, er afar ^ víöáttumikiö: Austurströnd Sinalskaga frá Scharm el-Scheich að Elat, og Gazasvæðið að ógleymdum Jórdandalnum. Vesturbakki Jórdan yröi þá aftur arabiskt yfirráðasvæði. Allon kallar þetta „Friðaráætlun.” Jafnt sóslalistar og hægri menn i tsrael eru sammála um að þeir hafi fyllsta rétt til þess aö innlima arablskt land. „Við eigum rétt á 28 VIKAN 28.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.