Vikan - 12.07.1973, Page 33
Hvað hugsa
börnin
ef foreldrarnir
drekka ?
Foreldrar hafa miklar áhyggjur
af þvi, þegar þeir komast að þvi
að börnin þeirra eru farin að
smakka vin. En börnin hafa lika
áhygggjur af foreldrum sinum —
sérstaklega litil börn, sem verða
hrædd, þegar þau sjá að mamma
og pabbi eru eitthvað annarleg i
framkomu.
Stærri börn verða skömmustuleg,
til dæmis ef þau koma heim, þeg-
ar samkvæmi er hjá foreldrunum
og þau sjá að móðir þeirra er
kjánaleg og faðirinn háværari en
ella, eða öfugt.
Það er barnasálfræðingurinn
Magne Raundalen, sem segir frá
viðbrögðum barna við þvi að for-
eldrarnir drekka...
Ef fjögra til fimm ára gamalt
barn vaknar upp um miðja nótt
við það að foreldrarnir hafa sam-
kvæmi, þá getur ýmislegt skeð:
Barnið verður miðpunkturinn i
samkvæminu. Allir vilja tala við
það, það fær allt i einu að gera allt
það, sem bannað er að degi til.
Það fær kannski að bragða á vini
eða öli og veröur þá kannske eins
og litill trúður, veizlugestum til
mikillar skemmtunar, án þess að
barnið skilji hvað sé skemmti-
legt.
Barnið skilur ekki þá athygli,
sem það vekur.
— Þegar foreldrarnir éru undir
áhrifum, sér barnið, að þau eru
eitthvaö annarleg, en skilur ekki
ástæðuna til þess.
Þvi strangari sem foreldrarnir
eru daglega, þvi meiri verða við-
brigðin, þegar þau hafa bragðað
vin. Það verður til að vekja ótta
hjá barninu.
—■ Er þá rangt að láta barnið
sjá, ef maður er undir áhrifum á-
fengis?
Það er mikið undir þvi komið
hvernig breytingin verður. Ef
foreldrar og börn eru vön hávaða
og mikilli fyrirferð I daglegu lifi
— ef foreldrarnir venja börnin á
hávaðasaman leik, jafnvel rysk-
ingar, þótt i góðu sé, munu þau að
likindum ekki skynja mismuninn.
En venjulega eru börn mjög
glögg, þegar foreldrarnir eiga
hlut i máli. Eftir þvi sem meira er
drukkið, missir fólkið meira vald
á hegðun sinni og sambandi við
börnin.
— Hve fljótt skynjar barnið
hvað það er þegar fullorðna fólkið
er undir áhrifum áfengis?
— Frá f jögra til fimm ára aldri
geta þau farið að leika „fulla
menn”. Þau hafa ef til vill séð
fullan mann á götunni og orðið
hrædd. Það er mjög eðlilegt að
það vekji hjá þeim hræðslu. Þess-
vegna fá þau þá oft ennþá meiri
ótta af vindrykkju en tilefni er til.
Og þegar þau sjá foreldrana
neyta áfengis, óttast þau að þau
verði eins og fulli maðurinn á göt-
unni.
Börn vita hvernig fólk verður,
þegar það er ölvað, en þau vita
alls ekki ástæðuna til þess að það
verður þannig, ef það er ekki út-
skýrt fyrir þeim.
— Hvað á þá að segja börnum
um áfengi? Framhald á bls. 36