Menntamál - 01.10.1949, Side 6
64
MENNTAMÁL
íslenzkur kostakvistur. Um það bera ljóð hans sennilega
bezt vitni. Hann hefur drukkið í sig hið bezta úr menningu
átthaga sinna og þjóðar, og það hefur runnið honum í merg
og bein. Sú menning er ekki einskis nýt, sem fóstrað hefir
slíkan mann. En hann hefur einnig flutt hingað erlend
menningaráhrif. „Þá haukskyggnu sjón,“ sem þau hefur
valið, hafa alið „fjöll vor og firðir“. Amerískur mennta-
maður, sem hér var á ferð í sumar, harmaði það. að hingað
hafi borizt ýmislegt hið lélegasta úr amerískri menningu,
svo sem tyggigúm, ,,hazard“-blöð og lélegar kvikmyndir.
Innflutningur Steingríms er af allt öðrum toga spunninn,
enda er góður að honum nauturinn.
Steingrímur er kvæntur Hansínu Pálsdóttur frá Æsu-
staðagerði í Eyjafirði. Eiga þau mjög ánægjulegt heimili.
Kennarasamtökin heiðruðu Steingrím á sjötugsafmælinu
með því að láta gera af honum málverk, sem á að verða
eign Kennaraskólans eftir hans dag. Barnavinafélagið
„Sumargjöf" gengst fyrir þvi að láta gera brjóstmynd af
honum. Á að velja henni stað á barnaleikvelli í Reykjavík.
Á. H.
Sigurður Sigurðsson kennari,
sá sem ritar greinina: Ritháttur íslenzkunnar, er fæddur 14. nóv.
1871 í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu, lauk prófi frá
Möðruvallaskóla 1895 og kennaraprófi frá Blaagaards Seminarium í
Kaupmannaliöfn 1904. Hann liefur stundað kennslu á Eiðum, í
barnaskóla Reykjavíkur, á Hólum í Hjaltadal og við barna- og ung-
lingaskóla á Seyðisfirði. Bókavörður Bókasafns Austurlands hefur
hann verið frá 1930. Hann hefur verið áhugamaður um bindindis-
mál og fræðslumál og flutt erindi og ritað í blöð og tímarit um jtessi
efnj,