Menntamál - 01.10.1949, Síða 12

Menntamál - 01.10.1949, Síða 12
70 MENNTAMÁL hafa almennt verið notuð og talin góð og gild. Virðist þetta einkum miðað við nákvæmari hliðsjón af orðstofnum en áður hefir tíðkast. Nær það þó aðeins til nokkurra orða, en ekki allra, t. d. má rita amerískur, austurískur og reyk- vískur án þess að hafa k á undan sk. Hér er því ekki um fyllsta samræmi að ræða. Á undan t er / og p með sama hljóði. H. Kr. F. táknaði það jafnan með p. Síðar var tekin upp sú regla að miða við stofn orðanna og rita t. d. Ijúft af Ijúf en djúpt af djúp. Sú regla er notuð almennt í riti. í nýjustu bókunum er svo fyrir lagt að skrifa skuli skipta og svipta. Fyrra orðið er sagt skylt skipa, en hið síðara orðinu svipur. — Er þessi skyldleiki svo náinn, að sjálfsagt sé að rugla fastri venju til að koma honum að? Ég efast um, að það sé heppilegt, þó að það sé ekki vandlært. — 1 flestum orðabókum, sem skólafólkið notar, öðrum en Stafsetningarorðabókunum nýju, munu umrædd orð rituð með /. Hljóðtáknin / og v hafa sama hljóð í framburði fjölda orða, einkum milli tveggja sérhljóða. Um það, hvort rita skal á hverjum stað, er aðalreglan þessi: Þar sem hljóðið helzt í beygingarstofni orðanna skal það táknað með /, en í endingum orða með v. — Á eftir þessari aðalreglu segir Fr. G. í Ritreglum sínum, að sumir skrifi Svavar og Svava, ævi og ævintýri. Megi það til sanns vegar færa, þegar miðað sé við framburð og fornan rithátt. — Annars skilst mér, að sumir aðrir, sem reglur semja um rithátt, séu ákveðnari í því en Fr. G. að rita v í þessum orðum. — Hvað sumir skrifa er ekki ætíð eftirbreytnisvert til að miða rithátt við. T. d. skrifa sumir háskólagengnir ís- lendingar örfa og örfandi, þó að Ijóst sé, að stofninn er ör bæði í nafnorðinu og lýsingarorðinu og að v verði því rétta hljóðtáknið á eftir r. Fleiri samsvarandi dæmi hefi ég séð, þó að um annað sé að ræða en / eða v. Ég er ekki glöggur á að greina hljóð málsins, enda finn ég engan mun á hljóðum þeim, sem tákna skal með / eða

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.