Menntamál - 01.10.1949, Qupperneq 19
MENNTAMÁL
77
eldri orðabókunum, sem ég hefi litið í, er það aðeins orða-
bók séra Jónasar, sem hefir aðallega v í þessum orðum. •—
Þannig sést það „svart á hvítu“, að almenni ritháttur
orðanna hefir lengi verið sá, að rita þau með /, þó að hitt
hafi einnig verið til. Stafsetningin með / var búin að ná
þeirri festu, að óheppilegt virðist að breyta henni.
Líkt má segja um sumar aðrar nýbreytingarnar, sem
nefndar eru að framan.
í öðru lagi er lítil áherzla lögð á það, að sama orðið sé
jafnan ritað á sama veg. Verður því ritháttur margra orða
sitt á hvað hjá þeim, sem fylgja vilja aðalreglunum.
Þetta festuleysi og afbrigði frá almennum rithætti, sem
nú ber mikið á, virðist mér valda að nokkru leyti vaxandi
ruglingi í þessum efnum. Mun það eiga sinn þátt í því
„ófremdarástandi", sem B. G. nefnir svo í riti sínu um
framburð og stafsetningu.
Síðasta hefti Menntamála.
Árni Þórðarson skólastjóri og Guð'jón Guðjónsson skólastjóri önn-
uðust útgáfu síðasta heftis Menntamála í forföllum undirritaðs, sem
færir þeim beztu Juikkir fyrir. Ritstj.
Tveir nýir gagnfræðaskólar í Reykjavík.
Tveir nýir gagnfræðaskólar taka til starfa í Reykjavik í haust. Ann-
ar jreirra verður til húsa á Hringbraut 121 í leiguhúsnæði. Skólastjóri
hans er Árni Þórðarson fyrr eftirlitskennari í íslenzku við Miðbæjar-
skólann. Hinn á samastað í Franska spítalanum í Reykjavík. Skóla-
stjóri þessa nýja skóla er Jón Gissurarson, áður kennari við Gagnfræða-
skólann í Reykjavík.