Menntamál - 01.10.1949, Síða 33

Menntamál - 01.10.1949, Síða 33
MENNTAMÁL 91 Ástæðan til að heimilin eru svo mikilvæg, er einkum sú, að tilfinningalíf barnanna er oftast meir bundið foreldr- um og systkinum en kennurum eða öðrum félögum. Heim- ilið hefur auk þess mótað skapgerð barnanna fyrstu árin. Oftast er heimilum erfiðu barnanna að einhverju leyti ábótavant. Algengasti gallinn er drykkj uskapur annars eða beggja foreldranna. Algengar orsakir eru líka langvinn veikindi aðstandenda, dauðsfiill, skilnaðir, fátækt og þess konar. Oft er þó um að ræða heimili, sem virðast góð, en hefur ekki tekizt að veita börnunum þá hlýju og skilning, sem eru nauðsynleg skilyrði fyrir eðlilegum þroska. Oft geta félagsleg vandamál ásamt truflunum á tilfinninga- lífi orðið þess valdandi, að barninu notist ekki að gáfum sínum, og dæmi það, sem hér var tekið, sýnir þetta vel. í þessari grein hef ég leitazt við að lýsa, hvernig sálfræð- in er hagnýtt á sálfræðistofunni, sem Óslóarborg rekur fyrir sína skóla. Ennþá er þetta allt á byrjunarstigi. Hvert land hefur hagnýtt.sálfræðina nokkuð á sinn hátt. Ef við berum saman skólasálfræðina í Noregi og Danmörku, sjá- um við, að í Noregi er lögð meiri áherzla á andlega heilsu- vernd, en í Danmörku er sálfræðin hagnýtt meira bein- línis í þágu námsins. Ég ætla ekki að spá neinu um, hvernig heppilegast muni verða að skipa þessum málum hér á landi. Uppeldisfræði- leg vandamál eru nokkuð mismunandi í hinum ýmsu lönd- um. Þau ákvarðast af menningu og venjum hverrar þjóðar. En ef við gerum einhvern tíma eitthvað fyrir okkar erfiðu börn, þurfum við að leita fyrirmynda frá sem flestum stöð- um og reyna að samræma það bezta, sem við finnum, og það, sem bezt á við aðstæðurnar í okkar landi.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.