Menntamál - 01.10.1949, Síða 36
94
MENNTAMÁL
fræði, þjóðfélagsfræði, saga, landafræði, líffræði, eðlis-
fræði, hagnýtt nám (praktisk grunnkurs) teiknun, músík
og leikfimi. í fyrsta bekk á enska einnig að vera skyldu-
námsgrein og efnafræði í öðrum bekk. — Hagnýta námið,
sem skylt skal að leggja stund á, varðar störf og rekstur
heimila, viðgerðir á húsgögnum og heimilistækjum, hagnýt-
ingu hvers konar efniviðar, leiðbeiningu um innkaup o. s.
frv. Miðar þetta mjög að sparnaði í bjóðarbúskapnum og
að kenna mönnum að búa sem bezt að sínu. Er þegar lagt
mikið kapp á slíka kennslu í sænskum skólum. Kom það
glögglega í ljós á skólasýningunni miklu í Stokkhólmi sum-
arið 1948. — Áuk þessa er gert ráð fyrir öðru hagnýtu
námi, þar sem nemendum verður gefinn kostur á að velja
sér námsgreinar. Eru þar nefndir saumar, smíðar (bæði úr
tré og járni), tækjagerð (fysikslöjd), garðrækt, vélritun
o. fl. Enn fremur er ætlazt til, að frumatriði iðnnáms í
fjölmörgum greinum verði kennd í 2. bekk. Skal hver nem-
andi kjósa sér sína iðngrein, og fer að sjálfsögðu eftir stað-
háttum, hvaða greinar og hversu margar hægt verður að
kenna á hverjum stað. Þessari iðnfræðslu er jafnframt
ætlað að kynna nemendum starfsgreinarnar í því skyni að
auðvelda þeim atvinnuvalið.
Með þriðja bekk gagnfræðaskólans hefst regluleg deilda-
skipting. Og er sá bekkur þrískiptur. Ein deildin er
bóknámsdeild, ætluð þeim, sem ekki hafa í huga að stunda
lengra nám í skóla, sem veitir almenna fræðslu t. d. mennta
-skóla. Verður kennsla í þeirri deild einkum framhald af
bóknámsgreinum 1. og 2. bekkjar. Áherzla er á það lögð,
að þeirri hugmynd verði haldið frá nemendum, að þeir séu
ekki fullnuma að skyldunáminu loknu, og í því skyni verði
reynt að kynna þeim, svo sem föng eru á, þær leiðir, sem
standi þeim til boða til að efla þekkingu sína, eftir að
skóla sleppir, t. d. starfsemi námsflokka, bréfskóla, bóka-
safna, útvarps, leikhúsa, kvikmyndahúsa, enn fremur tón-
list og að hagnýta sér hvers konar sýningar.