Menntamál - 01.10.1949, Side 40

Menntamál - 01.10.1949, Side 40
98 MENNTAMÁL skólamálanefndarinnar varðandi skólaskipanina. Tillög- urnar fela einnig fjölmargt í sér, sem eigi er kostur á að gera grein fyrir hér, svo sem mikilvægar ráðleggingar um vinnubrögðin í skólunum. Er þar lögð megináherzla á starfsuppeldi (aktivitetspedagogikk), enn fremur á hvers konar félagslegar ráðstafanir, hagnýtingu sálarfræðinnar í þágu uppeldisins o. fl. o. fl. — Er ekki ofmælt, þótt svo sé að orði kveðið, að þær beri vitni stórbrotinni viðleitni til mannræktar, fegrunar og göfgunar sænsks þjóðlífs. Á. H. Heimsókn norsku kennaranna. Svo sem kunnugt er bauð Samband íslenzkra barnakenn- ara 10 norskum kennurum hingað í heimsókn vorið 1945, þegar stríðinu var lokið, þ. e. a. s. þeim var boðið að kosta dvöl þeirra hér á landi hálfsmánaðartíma, ef þeir sæi sér fært að greiða fargjöldin. Var frá þessu sagt á sínum tíma bæði í ræðu og riti, m. a. á uppeldismálaþinginu 1945, og heitið á stuðning kennara í þessu máli. Var því vel tek- ið. Vegna ýmsra örðugleika gat norska kennarasambandið ekki þegið þetta boð strax, því að svo mörg óleyst verkefni biðu heima fyrir í stríðslokin, að þau urðu að sitja í fyrir- rúmi. En stjórnir kennarasambandanna héldu málinu vak- andi og biðu góðs færis. í fyrrasumar fóru nokkrir íslenzkir kennarar á 15. norræna skólamótið í Stokkhólmi. Á heimleið komu þeir við í Ósló. Norskir kennarar buðu íslenzku kennurunum í ferðalag út fyrir borgina og snæddu með þeim miðdegis- verð. Þá var ákveðið, að norsku kennararnir kæmu til Is-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.