Menntamál - 01.10.1949, Síða 42
100
MENNTAMÁL
Allt var þetta myndarlegt fólk á bezta aldri. Yngst voru
þau Slettemarkshjónin, bæði innan við þrítugt.
Berge og Rotnes komu með síldarbát til Siglufjarðar og
þaðan landleiðina til Reykjavíkur að kvöldi 30. júní, en hin
fjögur komu flugleiðis 1. júlí.
Stjórn S. í. B. hafði skipað móttökunefnd í vetur, er
hafa skyldi á hendi allt er varðaði undirbúning og fram-
kvæmd heimsóknar þessarar. Nefndina skipuðu: Arngrím-
ur Kristjánsson, skólastjóri, formaður, frú Arnheiður
Jónsdóttir, kennari við Kennaraskólann, Guðjón Guðjóns-
son skólastjóri, Ingimar Jóhannesson og Jón Sigurðsson
skólast j óri.
Nefndin hafði upphaflega ætlað að vista gestina á ýms-
um heimilum í bænum, en hvarf frá því ráði. Bjóst við að
gestunum mundi þykja skemmtilegra að búa að einhverju
leyti saman. Voru fengin 2 herbergi í Miðbæjarskólan-
um til íbúðar handa karlmönnunum, en kennslukonurnar
bjuggu hjá frú Arnheiði Jónsdóttur og Guðjóni Sæmunds-
syni húsasmíðameistara, Tjarnargötu 10 C. Svo snæddu
þeir allir miðdegisverð saman í Tjarnarkaffi, þegar þeir
voru ekki á ferðalagi, eða gestir einstakra kennara sem oft
kom fyrir. Var einhver nefndarmanna með þeim að mál-
tíðinni og til leiðbeiningar í bænum. Hlutverk þeirra var
auðvitað að kynna gestunum land og þjóð svo vel sem
hægt var á svona stuttum tíma. Var það gert með íerða-
lögum, kvikmyndasýningu, samsætum og heimsóknum i
skóla og til einstaklinga eftir því sem tækifæri gáfust. Var
hver dagur áskipaður, en þess þó jafnan gætt að gestirnir
hefðu nokkurt frjálsræði. Skal nú sagt frá því nokkru
gjör.
Ferffalög.
Fyrsta daginn var farið upp að Reykjalundi og skoðaðar
allar framkvæmdir þar og gengið um staðinn. Fannst gest-
unum mjög til um það allt, bæði framkvæmdirnar og fyrir-