Menntamál - 01.10.1949, Side 47
MENNTAMÁL
105
tökunefndar var lasinn. Bauð hann gesti velkomna og
skýrði skemmtiatriði. Samsætið hófst með því, að Hávard
Skirbekk skólastj. sýndi tvær ágætar myndir frá Noregi
og skýrði þær. Kvaðst hann vilja sýna gestgjöfum sínum
smámynd áf Noregi, þar sem þeir hefðu farið með þá félaga
vítt um sitt land undanfarna daga. Var gerður góður róm-
ur að máli hans og myndasýningunni. Síðan var setzt að
borðum. Voru fluttar margar ræður og mikið sungið. Fyrst
flutti formaður S. í. B. ávarp til norsku gestanna. Gerði
hann grein fyrir, hvers vegna S. í. B. hefði boðið norsku
kennurunum, hve mikil samúð hefði verið með þeim hér
á landi í baráttu stríðsáranna og hvað þjóðirnar væru lík-
ar bæði að útliti, máli og menningu allri. I lok ræðu sinnar
bað hann fararstjóra fyrir kveðju til Norges Lærerlag og
afhenti honum gjöf til þess frá S. í. B., skrautútgáfu Helga-
fells af ljóðum Jónasar Hallgrímssonar. H. Skirþekk svar-
aði og flutti snjalla ræðu, þar sem hann lét í ljós ánægju
sína yfir ferðalaginu og þakkaði með fögrum orðum mót-
tökurnar. Einnig talaði hann um vaxandi kynni íslenzkra
og norskra kennara og óskaði, að samskipti þeirra yrðu
sem mest í náinni framtíð. — Hinir gestirnir fluttu allir
stuttar kveðju- og þakkarræður. Voru þeir allir vel máli
farnir og sumir ágætlega. Allir létu þeir í ljósi ánægju yfir
góðum viðtökum, töluðu um fegurð landsins og að þessi
ferð væri orðin í alla staði ánægjulegri en þeir hefðu getað
ímyndað sér. Sumir þeirra létu í ljósi aðdáun sína á ýmsu,
sem þeir höfðu séð hér, t. d. hinum nýju skólum og mörgu
fallegu íbúðarhúsunum, sérstæðu, stórbrotnu landslagi o.
fl. Einn þeirra sagði, að börnin í skóla sínum hefðu vitað
dálítið um íslands, en hér eftir skyldu þau vita miklu meira.
Sá hinn sami keypti bæði stórt veggkort af íslandi og stór-
an íslenzkan fána handa skóla sínum. Allir fullyrtu þeir,
að ferð þessi yrði þeim ógleymanleg, og ýmsir þeirra sögðu,
að hér eftir myndu þeir gera allt, sem í þéirra valdi stæði