Menntamál - 01.10.1949, Page 48
106
MENNTAMÁL
til þess að kynna ísland meðal landa sinna. Var auðheyrt,
að þar fylgdi hugur máli.
Áður en staðið var upp frá borðum, voru sungnir þjóð-
söngvar Noregs og íslands. Síðan voru borð upptekin og
dans stiginn af miklu fjöri fram yfir miðnætti.
Daginn eftir var kvöldverðarboð það hjá Arngrími
Kristjánssyni skólastjóra, sem áður getur. Þar flutti
hann ágæta kveðjuræðu fyrir hönd móttökunefndarinnar
og afhenti gestunum gjöf til minja frá S. I. B. Var það
íslenzkur fáni á skreyttri málmstöng. Bókagjafir bárust
þeim og frá ýmsum nefndarmönnum. Gestirnir svöruðu
allir og þökkuðu. Var þetta mjög ánægjulegt kvöld, sem
og öll hin.
Heimsóknir í skóla, söfn o. fl.
Annað kvöldið, er gestirnir dvöldu hér, var þeim sýndur
Laugarnesskólinn og sýndar þar 2 íslenzkar kvikmyndir.
Var það kvikmynd skógræktarfélags íslands af Þórsmörk
og öræfum og Heklumynd Guðm. frá Miðdal, er sýndi S.
f. B. þá velvild að koma sjálfur og skýra myndina. Var
það ágætur greiði. Síðan skoðuðu gestirnir fleiri skóla
hér í Reykjavík og barnaskólann í Hafnarfirði. Einnig
skoðuðu þeir alla helztu skóla, sem urðu á leið þeirra i
norðurferðinni, svo og Laugarvatnsskólann. Einkum þótti
þeim merkilegt að kynnast þar líka starfi húsmæðraskól-
anna. Mikið þótti þeim koma til nýjustu skólanna hér í
Reykjavík og sögðust ekki hafa séð svo myndarlega ný-
tízku skóla fyrr, t. d. eins og Lauganesskólann. Gerðu þeir
sér far um að kynnast öllum nýjungum, er fyrir augu bar,
í skólanum og einnig íslenzku skólastarfi. Einn daginn
voru þeir boðnir í fræðslumálaskrifstofuna og þar átti
fræðslumálastjóri langt viðtal við þá og svaraði fyrir-
spurnum þeirra um íslenzk skólamál. Fengu þeir hvor um
sig að gjöf fræðslulögin nýju í danskri þýðingu svo og all-