Menntamál - 01.10.1949, Side 50
108
MENNTAMÁL
kennaranna lokið. Má segja, að hún hafi vel tekizt. Hjálp-
aðist að hagstætt veður og greiðvikni og góðvild margra
manna. Einnig það að norsku kennararnir voru prýðileg-
ustu menn, sem ánægja var að kynnast og voru því ágætir
fulltrúar þjóðar sinnar. Ég er viss um, að þessi heimsókn
hefur orðið til þess að auka gagnkvæm kynni norskra og
íslenzkra kennara og stórum auka þekkingu á málefnum
Noregs og Islands.
Niðurlagsorð.
Ég vil að lokum þakka öllum aðilum, einstaklingum og
félagsheildum, sem greiddu götu gesta vorra og gerðu dvöl
þeirra svo ánægjulega, sem raun varð á. S. t. B. hefur unn-
ið þarna félagslegt átak með hjálp allmargra góðra með-
lima, sem lengi mun minnzt. — Er þar margra að minn-
ast, en einkum voru það þó þeir skólastjórarnir Arngr.
Kr. og Jón Sig. ásamt frú Arnheiði Jónsdóttur, er lögðu
einna drýgstan skerf til þessa starfs, þar sem þeir lánuðu
bíla sína og daga endurgjaldslaust til ferðalaga og frú
Arnheiður tók 2 gestina á heimili sitt fyrir utan margan
annan greiða. S. í. B. stendur í mikilli þakklætisskuld við
slíka félaga, og má ekki minna vera en að það sé viður-
kennt og þakkað, um leið og þessarar heimsóknar er
minnzt. Arngr. Kristjánsson á og miklar þakkir skildar
fyrir hið framúrskarandi starf, sem hann vann sem for-
maður móttökunefndarinnar og fararstjóri á ferðalög-
unum.
Bréf hefur borizt frá formanni Norges Lærerlag, Káre
Norum, þar sem hann þakkar móttökurnar og segir m. a.:
„Fra Norges Lærerlag sender vi med dette vár
varme takk for all den gjestfrihet og alt det vennskap
váre utsendinger ble mött med under oppholdet pá
Island. Turen ble for dem alle et uforglemmelig minne!
--------Den kontakt vi ná har fátt mellom váre