Menntamál - 01.10.1949, Síða 52
110
MENNTAMÁL
Fundarstjóri var kf)siini Skúli Þorsteinsson, skólastjóri og ritari Gunn-
ar Ólafsson, skólastjóri. Endurskoðandi reikninga sambandsins var
kjörin Nanna Guðmundsdóttir, kennari í Berufirði.
A fundinum flutti Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri erirnli um fram-
haldsnámið og samvinnu Eiðaskóla við barna- og unglingaskóla á
Austurlandi. Umræður urðu miklar og fjörugar.
Sigfús Jóelsson, námsstjóri flutti erindi um athuganir sínar og niður-
stöður varðandi landsprófin og aukinn námsárangur síðustu ára.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á fundinum:
I. „Aðalfundur Kennarasambands Austurlands skorar á Ríkisút-
gáfu námsbóka að gefa lit:
1. Eorskriftarbækur, byggðar á skriftarkerfi Guðmundar í. Guð-
jónssonar, kennara við Kennaraskóla íslands.
2. Byrjendabók í reikningi. Jafnframt verði reikningsbækur barna-
skólanna endurskoðaðar í samræmi við þær tillögur, sem fram
koma í greinargerð þeirra Guðmundar og Jónasar B. Jónssonar
í „Drögum að námskrá“.
3. Atriðapróf í reikningi eftir Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúa.
II. „Aðalfundur Kennarasambands Austurlands telur ákvæði
fræðslulaganna um verklegt nám unglinga stórmerkan þátt skóla-
kerfisins, en vill vekja athygli á jiví, að verklega námið muni jiví að-
eins koma að tilætluðum notum, að lokapróf verknámsdeilda veiti
ákveðin réttindi, bæði (il þeirra skóJ;i, sem nám veita í iðngreinum,
svo og til starfa í ýmsum greinum atvinnulífsins.
Jafnframt bendir fundurinn á, að í verknámsdeildum verði gerðar
sömu kröfur í móðurmáli og reikningi og í bóknámsdeildum."
Fundurinn beindi Jreirri ósk til væntanlegrar stjórnar, að hún at-
hugaði möguleika á því að hafa handavinnu- og vinnubókasýningu í
sambandi við næsta aðalfund.
í stjórn voru kosnir: Skúli Þorsteinsson, Haraldur Þórarinsson og
Sigfús Jóelsson.