Menntamál - 01.10.1949, Blaðsíða 56
114
MENNTAMÁL
Dánarminning.
Sigurður Sigurðsson kennari á ísafirði.
Hann var fæddur á ísa-
firði 7. marz 1889, sonur
Sigurðar Guðmundssonar
kaupmanns og konu hans,
Guðbjargar Ólafsdóttur.
Hann stundaði fyrst nám í
Flensborgarskóla, en síðan
í Kennaraskólanum og
lauk þaðan prófi 1910. Að
því loknu hélt hann til
Danmerkur og Englands
og stundaði þar framhalds-
nám. Raunar var öll ævi
hans óslitinn námsferill.
Hann var öldungis óvenju-
legur maður að námsfýsi.
Vakinn og sofinn eða að
minnsta kosti dagfari og
náttfari fetaði hann þær slóðir, sem lágu til aukinnar þekk-
ingar. Þar var hann sannur Velsporrekjandi. Það voru hin
óskyldustu efni, sem hann hafði kynnt sér. Mest orð mun
hann hafa haft á sér fyrir málakunnáttu, en mér virtist
hann ótrúlega víða með á nótunum.
Kynni mín af honum voru nær eingöngu sprottin af
því, að ég þurfti stundum að afla mér vitneskju um ýmis
efni hjá honum. Minnist ég sérstaklega tveggja dæma. Ann-
að var það, er ég var að fást við athuganir á greindar-
þroska barna í barnaskólanum á ísafirði veturinn 1934—
1935. Um þau efni gat hann gefið mér hinar ágætustu leið-
beiningar, ogkomst ég þá jafnframt að raun um, hve geysi-
Sigurður Sigurðsson.