Menntamál - 01.10.1949, Page 58
116
MENNTAMÁL
hefur eigi verið auðveld við hin kröppu kjör kennarans en
hún bugaði þó aldrei þrá þessa f jölsvinna manns eftir meiri
þroska og þekkingu.
Á. H.
Minningarorð.
Guðmundur Eggertsson skólastjóri.
Guðmundur Eggertsson
skólastjóri í Kópavogi lézt
í júlímánuði s. 1. Hann var
fæddur í Hjörsey á Mýrum
26. marz 1905, flutti þaðan
kornungur með foreldrum
sínum að Einholti í Hraun-
hreppi og ólst þar upp.
Guðmundur stundaði fyrst
nám í Hvítárbakkaskóla,
en síðan í Samvinnuskól-
anum og lauk þaðan prcfi.
Kennari var hann í Hraun-
hreppi 1926—1933, en sett-
ist þá í Kennaraskólann og
lauk þaðan kennaraprófi
vorið eftir, hvarf því næst
aftur heim í átthagana og
stundaði þar kennslu til ársins 1944, kenndi því næst um
eins vetrar skeið í Stykkishólmi. 1945 tók hann við barna-
skólanum í Kópavogi.
Guðmundur var kvæntur Ragnheiði Ólafsdóttur frá
Dröngum á Skógarströnd, og lifir hún mann sinn. Þeim
varð eigi barna auðið, en höfðu tekið dreng til fósturs,