Menntamál - 01.10.1949, Qupperneq 60
118
MENNTAMÁL
að vaða yfir höfuð honum með yfirgangi. Hann hafði fast-
mótaðar skoðanir, hélt þeim fram með hógværð en festu
og lét ekki hlut sinn fyrir neinum manni. Hann var traust-
ur maður á allan hátt, ágætlega fallinn til allra félagsstarfa
og samvinnu, mjög vel máli farinn, rökvís og rólegur á
fundum, hugsaði hvert mál vel og studdi það eitt, er hann
hugði rétt. Hann var áhugasamur um opinber mál og þjóð-
mál, ákveðinn flokksmaður, en frjálslyndur og víðsýnn
maður, og ekki einn af þeim, sem hætta að hugsa, er þeir
skipa sér í flokk, og láta aðra mynda sér skoðanir og af-
stöðu til hvers máls þaðan í frá. Hann var í stuttu máli
fyrirmyndar þjóðfélagsborgari, eins og þeir þurfa að vera
í lýðræðislandi."
Á. H.
75 ára afmæli
Danmarks Lærerforening.
Danmarks Lærerforening hélt hátíðlegt 75 ára afmæli
sitt í Kaupmannahöfn 8.—11. ágúst s. 1. Stjórn þess bauð
1-—2 fulltrúum frá Samb. ísl. barnakennara að taka þátt
í hátíðahöldum þessum og skyldu þeir fá ókeypis vist í
gistihúsi meðan mótið stóð yfir.
Stjórn S. í. B. þakkaði þetta vinsamlega boð og ákvað
strax að fá einhverja kennara, sem staddir væru erlendis,
til þess að vera fulltrúa S. í. B. á móti þessu, en það reynd-
ist ekki eins létt og ætlað var. Þó rættist vel úr að lokum,
því að frú Arnheiður Jónsdóttir, kennari frá Reykjavík
hafði verið á kvennaþingi í Suður-Svíþjóð, er lauk 6. ágúst,
og skrapp síðan yfir sundið til þess að vera fulltrúi S. í.
B. á nefndu afmælismóti.