Menntamál - 01.10.1949, Síða 63

Menntamál - 01.10.1949, Síða 63
MENNTAMÁL 121 vistum úr bænuni uin þessar mundir. Forsetar þingsins voru þeir: Eiríkur Sigurðsson skólastjóri Akureyri, Sveinn Gunnlaugsson skóla- stjóri Flateyri og Gunnar Guðmundsson yfirkennari Reykjavík, en ritarastörf önnuðust Jóel Sigurðsson, Guðmundur Pálsson og Jónas Eysteinsson. A þinginu fluttu erindi dr. Matthías Jónasson: Mnnngildi nfbrnln nnglinga, dr. Símon Jóh. Ágústsson:SfóV/ og aðstaða barnaverndar- nefnda og sendiherra, frú Bodil Begtrup: Barnavernd á vegum Sani- einuðu þjáöanna. Þingfulltrúar sátu siðdegisboð kennslumálaráðuneytisins að Þing- völlum, en því liófi stjórnaði Birgir Thorlacius skrifstofustjóri í fjar- veru kennslumálaráðherra. Þá sat þingið einnig boð borgarstjórans í Reykjavík, en á sunnud. 26. júní höfðu fulltrúarnir skoðað barnaleik- velii, leikskóla og barnaheimili i Reykjavík og grennd, undir leiðsögn Jónasar B. Jónssonar fræðslufulltrúa. Aðeins ein nefnd starfaði í þinginu, er móta skildi álitsgerðir Jiings- ins. í Jieirri nefnd áttu sæti: Arngrímur Kristjánsson, formaður, síra Friðrik A. Friðriksson ritari. Eiríkur Sigurðsson, síra Helgi Konráðs- son, Hersilía Sveinsdóttir, Jóhann Þorsteinsson, Jónas B. Jónsson, Rannveig Þorsteinsdóttir, Sigfús Jóelsson, Steinunn Bjartmarsdóttir og Þorleifur Bjarnason, en auk þeirra sátu Jieir fundi nefndarinnar, síra Jakob Jónsson og dr. Matthías Jónasson, og unnu þeir ásamt formanni og kjörnum fulltrúum frá nefndinni að samningi álitsgerða þeirra, er þingiö samþykkti að lokum. Að lokinni samþykkt tillagnanna flutti dr. Matthías Jónasson nokk- ur hvatningarorð til þingfulltrúanna, en varaformaður S. í. B. sleit þinginu með stuttri ræðu. Þinginu var slitið mánudagskvöldið 27. júní, og hafði það þá setið í 4 daga. Fundi Jiess sátu að jafnaði um og yfir 100 manns. A. K. Tillögur uppeldismálaþingsins um vernd barna og unglinga. Uppeldismálaþing S. í. B. haldið í Reykjavík 24.-27. júní 1949 lýsir yfir Jiví áliti sínu að vinna þurfi að barnaverndarstörfum með tvii sjónramið í lruga: í fyrsta lagi að vernda börn og unglinga fyrir óhollum áhrifum og í öðru lagi að bjarga þeini, sem einhverra hluta vegna hefur reynzt ófært að lila lífi sínu á heilbrigðan hátt. Tillcigur þingsins miðast því við Jressi tvö sjónarmið, enda Jiótt þinginu sé Jjóst, að í framkvæmdinni verða þau ekki aðskilin til lulls. Þingið vill vekja athygli á Jiví, að það telur óhjákvæmilegt, að ríkis- valdið, bæjar- og sveitarfélög auk einstakra félaga og stofnana Ieggist á eitt, ef nokkur varanlegur árangur á að nást í þessum málum.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.