Menntamál - 01.10.1953, Qupperneq 42
108
MENNTAMÁL
FIMMTUG:
Halldóra Friðriksdóttir
skólastjóri.
Halldóra Friðriksdóttir, skólastjóri heimavistarskólans
í Núpasveit í Norður-Þingeyjarsýslu, varð fimmtug 3.
júní síðast liðinn.
Um hana ritar Guðmundur Eiríksson skólastjóri á
Raufarhöfn Menntamálum m. a. á þessa leið:
„Þegar heimavistarskólinn var byggður á Snartar-
stöðum í Núpasveit, tók hún við forstöðu hans og hefur
haldið því starfi síðan. Það mun ekki um deilt, að það
starf hefur hún leyst af hendi með snilld og prýði. Þar
hefur hún verið elskuð og virt af nemendum sínum og
aðstandendum barnanna, og oft hefur mig undrað, hve
létt hún á með að halda aga og hinum verstu óróaseggj-
um í skefjum, aðeins með sínu blíða viðmóti, alvarlega
tilliti og því, að allir vita, að hún er ætíð réttlát og fljót
að fyrirgefa. ... Halldóra er kennari af guðs náð, kenn-
ari af lífi og sál, kennari, sem kennir vegna starfsins, en
ekki vegna launanna. Þrátt fyrir oft töluvert erfiðar
heimilisástæður hefur Halldóra sótt fjölda námskeiða og
alltaf verið að læra sjálf.“
Halldóra er gift Sigurði Björnssyni frá Grjótnesi, sem
um mörg ár hefur verið oddviti sveitar sinnar. Hefur
þeim orðið fjögurra barna auðið.