Menntamál - 01.12.1957, Blaðsíða 52
242
MENNTAMÁL
talaði Oittinen fræðslumálastjóri fyrir Finna, Stinius
Nielsen fyrir Dani, Yngve Norinder fyrir Svía, E. Boye-
sen fyrir Norðmenn og Broddi Jóhannesson fyrir fslend-
inga. Auk þess, sem að ofan greinir, ræddi finnski ræðu-
maðurinn um skipan finnskra skólamála og helztu við-
fangsefni í framtíðinni. Ræðumaður Norðmanna ræddi um
hlutverk skóla í iðnvæddu þjóðfélagi. Það var mjög skil-
merkilegt erindi og athyglisvert. Er einsætt, að Norðmenn
leggja kapp á að kynna ungmennum sínum það þjóðlíf,
þær aðstæður og þá lífskosti, er þeirra bíða heimafyrir.
Danski ræðumaðurinn ræddi um fræðslumálastjórn og
tengsl hinna ýmsu skólategunda. Þetta var skipulegt og
ljóst yfirlitserindi um helztu þætti fræðslumálastjórnar og
skólaeftirlits í Danmörku, skipulag þess og framkvæmd.
Allir þessir ræðumenn héldu sig að efninu og dagskrá
þingsins. Hins vegar verður vart sagt, að sænski og ís-
lenzki ræðumaðurinn hafi gert betur en koma að jaðrin-
um á aðalviðfangsefninu, Svíinn ræddi om enhetligthet
och differentiering inom skolvásendet. Þetta var glæsilega
flutt erindi um viðhorf merkra uppeldisfrömuða um grein-
ingu nemenda eftir þroska og tækifærum til að gera sem
bezt við hvern þeirra. Var erindið því einkum sögulegt
yfirlit. íslenzki ræðumaðurinn talaði um hlutverk skóla
í síauknu nabýli einstaklinga og þjóda, þörfina á raun-
hæfri gagnkvæmri fræðslu um aðrar þjóðir, sakir sam-
býlis og viðskipta, hver tök og hverjir erfiðleikar væru
á því að veita slíka fræðslu og hversu rannsóknir hefðu
leitt í ljós gagnkvæma fordóma þjóðanna. Hann varaði
við öfgum, hvort sem þær sveigjast til þjóðernis- eða al-
þjóðahyggju og lauk máli sínu með því að minna á, að
norrænar þjóðir eru sómaþjóðir í augum heimsins, og þser
munu lifa jafnlengi og þeim auðnast að gæta sæmdar
sinnar í augum heimsins og sjálfra sín. Skólunum getur
ekki verið það efni óviðkomandi.
Um þessi aðalerindi voru engar umræður, enda ekki til