Menntamál - 01.12.1957, Side 108
298
MENNTAMÁL
Kennarar voru spurðir, hvort þeir teldu, að dagblöð, út-
varp og kvikmyndir túlkuðu rétta mynd af æskunni. 1%
sögðu já. 70% töldu það hina mestu fjarstæðu og 29%
töldu það rangt, en kváðu ekki eins fast að orði. Venjan
er sú, að til frétta eru teknar undantekningar og frávik,
af því að það er vinsælt fréttaefni. Um 1 % nemenda veld-
ur öllum erfiðleikum í skóla. Og þeir verða hetjur á sviði
frétta, hinir allir fá að liggja í láginni.
Einkennandi dæmi: Einn dag um haust stakk nemenda-
ráð skóla upp á, að hafa hreingerningardag. Næstum allir
nemendur tóku sig saman og þvoðu skólann hátt og lágt,
bæði utan og innan. Að kvöldi sama dags stálu tveir eldri
drengjanna bíl, er þeir fóru til kappleiks. Þeir voru teknir
20 mílur utan við borgina. Þeir fengu 18 þumlunga langa
fréttagrein um sig á fyrstu síðu dagblaðsins með feitri
fyrirsögn, en allir hinir skólakrakkarnir, 437 að tölu, fengu
einn og hálfan þumlung á 36. síðu með engri fyrirsögn
fyrir sómastrik sitt.
Oft verður úlfaldi úr mýflugu: Mörg blöð birtu rosa-
fregn um víðtæka eiturlyfjanautn í nafngreindum skóla.
Kennarar hans stóðu agndofa. Þeir höfðu ekki hugmynd
um neitt slíkt. Skólastjóri óskaði eftir strangri lögreglu-
rannsókn, og var hún framkvæmd undandráttarlaust. Nið-
urstaða: Strákur einn hafði fengið öskju með 3 pillum í
hjá bílstjóra á langleiðavörubíl. Þessar pillur nota bíl-
stjórar til að halda sér vakandi við stýrið í tilbreytinga-
leysi akstursins. Strákurinn hafði sýnt félögunum, grobb-
að af og gefið hitt og annað í skyn. Þar með var sú mý-
fluga öll.
Kennarar nefndu nokkrar orsakir, er valda erfiðleikum
með unglingana. Er þar efst á blaði og aðalskaðvaldui’
vanmegna heimili barnsins og fjölskyldulíf þess. Þangað
ligg'ja oftast rætur vandamálsins. Fleira hjálpar einnig
til, svo sem skortur sérþjónustu við frávikabörn í sveit og