Menntamál - 01.12.1957, Qupperneq 118
808
MENNTAMÁL
FRÁ BARNASKÓLA AKUREYRAR.
Barnaskóla Akureyrar var slitið laugardaginn 11. maí að viðstödd-
um mörgum gestum. Skólastjóri Hannes J. Magnússon flutti skýrslu
um störf skólans á skólaárinu og ávarpaði síðan hina brautskráðu
nemendur.
Heilsufar hafði verið slæmt fyrri hluta vetrar, en með afbrigðum
gott síðari hluta skólaársins. Ljósböð fengu 262 börn og öllum börn-
um var gefið A og D vítamín í töflum allan veturinn. Tannskemmd-
ir voru miklar að vanda, og aðeins 139 börn höfðu allar tennur
heilar. Tannlækningastofa skólans er opin 4 stundir á dag.
Skráð voru í skólanum 973 börn, er skiptust í 37 deildir. Leigja
varð húsnæði utan skólans fyrir 5 deildir og alla handavinnu stúlkna
vegna þrengsla í skólanum. En verið er nú að byggja nýjan skóla
á Oddeyrinni, og standa vonir til að hann geti tekið til starfa í
haust. í smábarnaskóla þeim, er Hreiðar Stefánsson veitir forstöðu,
voru 123 börn. í skólann innrituðust í vor tæp 200 börn, en um það
bil 140 fara, verður því fjölgunin á þessu ári um 60 börn.
Erindi fluttu 1 skólanum Ólafur Ólafsson kristniboði, Vilhjálmur
Einarsson erindreki og Ólafur Gunnarsson sálfræðingur.
Merkjasala á vegum sparifjársöfnunarinnar varð að þessu sinni
47 þús. krónur.
Mikið var um íþróttakappleiki innan skólans á vetrinum. 14. okt.
fór fram sundkeppni um Snorrabikar og tóku þátt í henni 112 börn
í 14 sveitum. I febrúar var keppt bæði í skíðaboðgöngu og svigi, og
var þar einnig keppt um larandbikar. Tók fjöldi barna jtátt í þess-
ari keppni. í marz fór svo fram keppni i fimleikum drengja og
slúlkna, og var keppt um farandbikara. íþróttakennarar skólans sáu
um öll þessi mót.
Norrænn dagur var haldinn í skólanum 30. okt. og var Norður-
landanna allra minnzt með allmikilli dagskrá.
Þann 1. febrúar voru liðin 100 ár frá fæðingu Páls J. Árdals
kennara og skálds. í tilefni jressa afmælis hafði skólinn boð inni, og
var Páls minnzt þar á margan hátt með ræðum, söng, upplestri og
leikjrætti. Nokkur hluti jtessarar dagskrár var svo fluttur í barna-
tíma útvarpsins á annan páskadag.
Lestrarstofu skólans, sem opin er 6 stundir á viku, sóttu um 230
börn.
Hæstu einkunnir á ársprófi hlutu Snjólaug Bragadótir, 9,08, Guð-
ríður Þórhallsdóttir, 9,06, Álfhildur Pálsdóttir, 9,03, og Guðrún Árrta-
dóttir 9,03.