Menntamál - 01.12.1962, Side 23
MENNTAMÁL
237
í nýjum skóla, sem ég skoðaSi af svipaðri stærð og
Grundtvigsskólinn, er sérstök álma byggð fyrir bókasafn-
ið. Skólinn er mjög nýtízkuleg einnar hæðar bygging,
skreytt höggmyndum og málverkum. I þessum skóla, sem
ber hið sérkennilega og fagra nafn „Kirsebærhavens"
skóli, er einnig til húsa auk skólabókasafnsins, barna- og
almenningsbókasafn. Það hefur ýmsa kosti að hafa allar
þessar safndeildir undir sama þaki. Á teikningu þeirri,
sem skólinn er byggður eftir, var að sjálfsögðu gert ráð
fyrir bókasafninu, enda er tilhögun öll til fyrirmyndar.
Það er að ýmsu leyti óheppilegt, eins og þó er gert í flest-
um eldri skólum, að nota almenna kennslustofu fyrir bóka-
safnið. Rúm fyrir bókahillur er þá mjög takmarkað, þegar
frá dragast gluggar, veggtöflur skápar o. fl. Hver deild
safnins hefur sína sérstöku skrifstofu fyrir bókaverði, og
auk þeirra starfar þarna aðstoðarfólk. í bókasafnsálmunni
er einnig sérstakt eldhús handa starfsfólkinu. f bókasafn-
inu eru alls um 14 þús. bindi. Allar bókahillur eru opnar,
og smíðaðar úr vönduðum viði. Bókastoðir úr ljósu tré
eru klemmdar á hillurnar með sérstökum gormaútbúnaði,
svo auðvelt er að færa þær með einu handtaki. Til að að-
skilja hina mismunandi bókaflokka eru notaðir þykkir
trékubbar með bókstöfum.
Til gamans má geta þess, að sérstakur bókasafnsgarð-
ur er við þessa álmu skólans. Þar eru bekkir til að sitja
á. f góðu veðri að vori til geta börn og fullorðnir slegið
tvær flugur í einu höggi, setið þarna úti og notið sam-
tímis sólar og lestrar góðrar bókar.
Eins og áður er sagt, verður í flestum gömlu skólun-
um að notast við almenna kennslustofu fyrir bókasafnið.
Sums staðar hefur verið settur upp stuttur veggur eða
skilrúm fram á gólfið til þess að auka veggpláss fyrir
bókahillurnar.
í þessum bókasafnsstofum fer fram bekkjarkennsla til
hádegis, en eftir hádegið er stofan notuð í þágu safnsins.