Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 7
MENNTAMÁL
XLII. 1
JANÚAR—APRÍL
1969
Formáli
eðlis- og efnafræðiskýrslu
MenntamálaráðuneytiS skipaði að tillögu Skólarannsókna
nefnd hinn 14. ágúst 1967 til að fjalla um endurskoðun
námsefnis og kennslu í eðlis- og efnafræði vrpp að gagn-
fræðaprófi. Fornraður nefndarinnar var skipaður Svein-
björn Björnsson, eðlisfræðingur, en aðrir í nefndinni voru
Páll Theódórsson, eðlisfræðingur, Sigurður Elíasson, kenn-
ari, Steingrímur Baldursson, prófessor og Þórir Ólafsson,
menntaskólakennari. Nefndin skilaði ráðuneytinu ýtarlegri
álitsgerð í maí 1968. Eftir að tillögur og ályktanir nefndar-
manna ltöfðu verið atliugaðar hjá Skólarannsóknum, sam-
þykkti ráðuneytið tillögurnar og framkvæmdaáætlun um
nýja kennslu, sem nefndin hafði gert. Var síðan hafizt handa
um að ráða framkvæmdastjóra fyrir endurskoðunina, og
var Örn Helgason, eðlisfræðingur, settur námsstjóri í því
skyni hinn 1. september s. 1. að starfs, og er gert ráð fyrir
því, að hann taki við fullu starfi námsstjóra frá og með
næsta sumri. Loks ber þess að geta, að fjárveitingavaldið
tók áætluninni vel, og voru kr. 350.000 veittar til endur-
skoðunar nánrsefnis og kennslu í eðlis- og efnafræði í fjár-
lögum 1969.
Undirritaður leyfir sér að álíta, að starf eðlis- og efna-
fræðinefndar hafi markað tímamót um endurnýjun skóla-
starfs á Islandi. I skipun nefndarinnar fólst af hálfu Mennta-
málaráðuneytis viðurkenning þess, að fyrst í stað skyldi