Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 65
MENNTAMÁL
59
Ólafur H. Einarsson var
kosinn formaður L. S. F. K.
vorið 1964, og með honum
í stjórn voru: Þorsteinn
Eiríksson, varaformaður,
Jónas Eysteinsson, ritari og
starfsmaður, Guðmundur
Árnason, gjaldkeri, Baldur
Jónsson, Bryndís Steinþórs-
dóttir, Magnús Jónsson,
Snorri Jónsson, Þráinn
Löve.
Eftir að kjaradómur
1963 gekk í gildi og til
framkvæmda kom aðgrein-
ing kennara í mismun-
andi launaflokka, þótti
meginþorra kennara hlut-
ur sinn ærið mjög fyrir borð borinn. Nokkrir kennarar, sem
skipaðir höfðu verið eftir lögum frá 1946 eða fyrr, hófu
þá baráttu fyrir leiðréttingu þess misréttis, er þeir töldu
sig beitta, og stóð Ólafur H. Einarsson snemma framar-
lega í flokki þeirra kennara.
Hver voru helztu rökin í baráttu ykkar?
Aður en ég svara pessari spurningu beint, tel ég rétt að
rekja i stuttu máli, hver var aðdragandi þessarar baráttu. I
marzmánuði 1963 samdi Kjararáð (samninganefnd B. S.
R. B.) um röðun framhaldsskólakennara i 16., 17., 18. og 19.
flokk þess 28 flolika kerfis, er það hafði þá skömmac áður
samið um, að opinberum starfsmönnum skyldi skipað i.
(Samtímis var samið um, að barnakennarar yrðu i flokkun-
um 12, 13, 15 og 16.) Höfuðundirstaða þessara samninga
var sú urn gagnfrœðaskólakennara, hvort menn hefðu
f)róf frá Háskóla íslands eða sambœrileg próf i B. A. frœð-
um og uppeldis- og sálarfrceðum frá Háskóla Islands. Með
Ólajur H. Einarsson.