Menntamál - 01.04.1969, Síða 29
MENNTAMÁL
23
stæðar aðstæður gætu orðið til þess í Æfingaskóla K. L, sem
nú er í byggingu. Þá væri æskilegt, að Kennaraskólinn yrði
virkur aðili við framkvæmd hinnar nýju kennslu í náttúru-
fræði, eðlis- og efnafræði á barnastigi. Gæti hann orðið mið-
stöð námskeiða fyrir barnakennara, og þar yrði komið upp
tækjasafni, sem kennarar gætu heimsótt til þess að kynnast
nýjungum og fá leiðbeiningar um kaup og notkun tækja.
Stúdentar úr stærðfræðideild eða náttúrufræðideild
menntaskóla, sem einnig hafa lokið námi í kennaradeild
stúdenta við K. í. hafa næga fræðilega jrekkingu til kennslu
eðlis- og efnafræði á barnastigi, en jaá skortir Jjjálfun í sýni-
kennslu og kennslu verklegra æfinga við barna hæfi.
2.8.2 Menntun kennara á gagnfræðastigi.
Nefndin telur, að til kennslu eðlis- og efnafræði á gagn-
fræðastigi jrurfi kennarar að hafa lokið B.A.-námi í þessum
greinum ásamt prófi í uppeldis- og kennslufræðurn eða
sambærilegu námi. Sé rniðað við núverandi menntun kenn-
ara, virðist Jaessi krafa þó ekki raunhæf. Nefndin hefur ekki
kannað menntun þeirra kennara, sem nú kenna eðlis- og
efnafræði í gagnfræðaskólum, en hún telur óhætt að full-
yrða, að mjög fáir þeirra fullnægi Jæssum kröfurn.
Aðsókn að B.A.-námi í eðlis- og efnafræði hefur verið
mjög dræm, og hafa ílestir Jreirra, sem lokið hafa námi,
íarið til kennslu á hærri skólastigum. Er brýn nauðsyn að
laða fleiri að Jressu námi, ef unnt á að vera að fullnægja
Jv'irf gagnfræðaskóla á hæfum kennurum. Nokkrar vonir
um aukna aðsókn eru bundnar við fjölgun stúdenta í stærð-
fræðideild menntaskóla. Veita þyrfti stúdentum úr náttúru-
fræðideiklum menntaskóla aðgang að Jjessu námi. Ennfrem-
ur Jryrfti að greiða fyrir inngöngu stúdenta úr menntadeild
raungreina, sem væntanlega verður starfrækt við Kennara-
skólann fyrir Jrá, sem lokið hafa kennaraprófi með vali í
eðlis- og efnafræði og stærðfræði, en líklegt er, að margir