Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 60
54
MENNTAMÁL
kinnroða fyrir félagsleg störf okkar þennan fyrsta áratug,
sem ég þeliki bezt til. Þar ltom m. a. til, að samslarf og ein-
hugur var cetið innan stjórnarinnar svo sem bezt verður
á ltosið. Öll störf okhar voru unnin i frístundum, stundum
nokkuð takmörkuðum, þvi að við þurftum lika að byggja
okkar eigið hús þá sem nú, og ég vona, að við liöfum öll
reynt að sanna tilverurétt og kröfurétt stéttar oltkar með
þvi að rœltja skólastörf oltkar eftir því sem við gátum.
Saga LSFK verður vonandi skráð, meðan enn er kostur
að rœða persónulega við ýmsa fulltrúa þess. Ur fyrstu stjórn
er fallinn í valinn Guðmundur Ólafsso?i frá Laugarvalni,
miltill persónuleilti, félagsliyggjumaður og góður leiðtogi.
Það var Ijúft og traust að leita ráða til hans og gott að finna
þegar, hversu heilshugar þessi reyndi skólamaður studdi þá
hugsjón, sem vakti LSFK til lífs og hélt þvi lifandi fyrsta
áfa?igann.
Þessum fallna samstarfsmanni og öllum öðrurn félögum
mínum fœri ég þaltkir fyrir gleðistundir við erilsöm félags-
störf. Við skulum vona, að eitthvað megi af þessum árum og
vileitni okkar læra. Ég hygg, að vilja?m hafi a. m. k. hvergi
skort, hversu sem sagan metur árangurinn.
Á sambandsþinginu, sem haldið var í miðjum september-
mánuði 1960 var Friðbjörn Benónísson kosinn formaður L.
S. F. K. Hann hafði áður setið í stjórn og gegnt formennsku
í Félagi Gagnfræðaskólakennara í Reykjavík frá stofnun
þess, og unnið af sérstakri elju, ósérhlífni og bjartsýni að
félagsmálum kennara almennt. Með honum voru kosnir í
stjórn: Kristján Benediktsson, varaformaður, Halldóra Egg-
ertsdóttir, gjaldkeri, Kristinn Gíslason, ritari og meðstjórn-
endur Ingólfur Þorkelsson, Jónas Eysteinsson og Þórhall-
ur Guttormsson.
Hinnar nýju stjórnar biðu örðug viðfangsefni. Launamál